Fimm keppendur komust áfram 18. janúar 2006 22:30
Forkeppni fyrir Matreiðslumann ársins fór fram í Menntaskólanum í Kópavogi í dag. Keppnin var hörð í ár sem endranær og matreiðslumennirnir töfruðu fram hverja kræsinguna á fætur annarri. Alls tóku 13 matreiðslumenn þátt í forkeppninni en af þeim komast aðeins fimm áfram. Aðalkeppnin, Matreiðslumaður ársins, fer svo fram á sýningunni matur 2006 um mánaðarmótin mars- apríl en þá þurfa kokkarnir að laða fram þriggja rétta máltíð fyrir dómnefndina. Það var líf og fjör í eldhúsinu þegar fréttamann bar að garði, andrúmloftið var þrungið spennu og já góðum matarilmi. Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran, aðstoðaryfirkokkur á Sjávarkjallaranum, er ánægð eftir daginn og taldi að sér hefði gengið vel. Hún segir að keppendur hafi átt að útbúa aðalrátt sem byggðist á lambahrygg og lambalæri fyrir tíu manns en uppskriftin sjálf væri keppanda að útbúa. Hrefna er eina konan sem keppti í keppninni og það sem meira er þá er hún jafnframt fyrsta konan sem tekur þátt. Hrefna er að vonum stolt af þátttöku sinni en segist ekki geta útskýrt af hverju fleiri konur séu ekki meðal þátttakenda. Bjarki Hilmarsson, yfirmaður dómnefndarinnar og yfirmatreiðslumeistari á Hótel Geysi, hefur dæmt í forkeppninni síðan árið 1994. Hann segir keppendur hafa staðið sig vel og forkeppnin hafi verið hörð í ár. Bjarki segir alltaf jafn gaman að dæma í keppnum sem þessari en dómarar verði þó að passa sig á að klára ekki af diskum keppenda. Bjarki segir að stílhreint yfirbragð og gott bragð hafi einkenntrétti þeirra sem fóru áfram í aðalkeppnina.
Fréttir Innlent Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Innlent Fleiri fréttir Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Sjá meira