Fáklæddar fyrirsætur á Mýrdalsjökli 10. nóvember 2006 12:45 Fáklæddur í snjókomu. Þessi karlmaður lét sér fátt um finnast og klæddi sig úr að ofan þótt kalt væri í veðri.
Kvikmyndafyrirtækið Labrador hefur staðið í ströngu undafarið en hér á landi hefur tökulið frá breska raunveruleikaþættinum Make Me a Supermodel. Á tökustað Selma Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Labrador ásamt Sigurði Frey Matthíassyni á tökustað, vel klædd, ólíkt fyrirsætunum. Að sögn Selmu Karlsdóttur, framkvæmdarstjóra Labrador, hafa hátt í fimmtíu manns starfað við þessar tökur en starfsmennirnir komu í þremur hópum, tveir frá London og svo komu hingað tískuljósmyndarar frá New York til að festa herlegheitin á mynd. Tökuliðið hefur farið víða, var lengi uppi á Mýrdalsjökli þar sem fyrirsæturnar sátu fyrir í efnislitlum fötum og háhæluðum skóm. „Þær stóðu sig reyndar eins og hetjur og ein þeirra lagðist á snæviþaktan jökulinn og faðmaði hann,“ segir Selma og hlær. Engin miskunn Fyrirsæturnar stóðu sig flestar eins og hetjur enda mikið í húfi, samningur við fyrirsætufyrirtæki. „Þær eru líka að keppa þannig að þær voru tilbúnar til að leggja ýmislegt á sig,“ bætir hún við. Þá var ferðinni einnig heitið á skemmtistaði borgarinnar, í Perluna og Bláa lónið þar sem tökunum lauk. Rachel Hunter Er ein þeirra sem situr í dómefndinni og kemur til með skera úr um hver af fyrirsætunum stóð sig best á Íslandi. Þátturinn með efninu frá Íslandi er sendur út á bresku sjónvarpsstöðinni Channel Five og sendu framleiðsluaðilarnir efni daglega í gegnum gervihnött til Bretlands. Tracy Manser, framleiðandi þáttanna, átti ekki orð yfir hversu vel hefði til tekist. „Þetta hefur bara verið ótrúlegt, allir eru mjög sáttir við þá þjónustu sem okkur hefur verið veitt og við komum alveg örugglega aftur hingað,“ sagði Tracy. Í réttu stellingunni Ekki var að sjá að þessari fyrirsætu þætti það mikið tiltökumál að vera léttklædd uppi á jökli og hún setti upp rétta svipinn fyrir tökuliðið. Sérstök dómnefnd velur bestu fyrirsætuna en í henni eiga meðal annars sæti Dylan Jones, ritstjóri GQ, tískuljósmyndarinn Perou og ofurfyrirsætan Rachel Hunter. Þættirnir njóta mikilla vinsælda í Bretlandi en þeim svipar mjög til hinna geysivinsælu þátta America‘s Next Topmodel.
Menning Mest lesið Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Lífið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Sjá meira