Tvær persónur deyja í lokabókinni 28. júní 2006 16:00 dumbledore Galdrakarlinn og vinur Potter, Dumbledore, lést í síðustu bók.
Tvær persónur í sjöundu og síðustu Harry Potter-bókinni sem er væntanleg á næsta ári munu láta lífið. J.K. Rowling, höfundur bókanna, viðurkenndi þetta í viðtali í enska sjónvarpsþættinum The Richard and Judy Show. Snæbjörn Arngrímsson, bókaútgefandi, er undrandi á þessum fregnum. Rowling var þögul sem gröfin um hvaða persónur þetta væru en sagðist sjálf hafa um örlög þeirra síðan í kringum 1990 þegar hún skrifaði lokakaflann. Sagðist hún jafnframt ekki búast við því að eiga eftir að skapa aftur jafnvinsæla persónu og Potter.Fyndin markaðssetningharry potter Margir halda að Harry Potter muni deyja í næstu bók.Snæbjörn Arngrímsson, eigandi bókaforlagsins Bjartur sem gefur út Harry Potter, segir þessar fregnir koma nokkuð á óvart. Hún er svolítið fyndin þessi markaðssetning þar sem það er boðaður dauði mörgum mánuðum áður en bókin kemur út. Þetta var gert fyrir síðustu bók og ég hugsaði með mér núna: nei, ekki aftur, segir Snæbjörn í léttum dúr. Það verður spennandi að sjá hver það er sem verður fyrir árás og fyrir þá sem þekkja þessar bækur vel er þetta dálítið scary. Harry lifir afsirius black Guðfaðir Harry Potter, Sirius Black, er einn af þeim sem hafa látið lífið.Í síðustu bók, Blendingsprinsinn, var það galdrakarlinn Dumbledore sem fór yfir móðuna miklu en áður hafði Sirius Black hlotið sömu örlög. Snæbjörn segist ekki hafa trú á því að Harry sjálfur muni deyja í lokabókinni þrátt fyrir að oft séu aðalsöguhetjurnar látnar deyja til að koma í veg fyrir að framhald verði gert síðar meir. Það var talað um að félagi Harry myndi fara í síðustu bók, en ég veit það ekki, það er ómögulegt að segja. Ég held að Harry lifi þetta af, ég trúi því, segir hann. Ekki hægt að biðja um meirasnæbjörn arngrímsson Eigandi Bjarts hefur enga trú á að sjálfur Harry Potter muni deyja í sjöundu og síðustu bókinni.fréttablaðið/pjeturBækurnar um Harry Potter hafa verið algjör gullnáma fyrir bókaforlagið Bjart undanfarin ár. Snæbjörn kvíðir ekki framtíðinni hjá forlaginu þrátt fyrir að aðeins ein bók um galdrastrákinn sé eftir. Það er óvenjulegt að fá sjö metsölubækur frá sama höfundinum, maður getur ekki beðið um meira. Allt gott tekur einhvern tímann enda, segir hann. Svona nokkuð kemur ekki nema á tíu ára fresti og það kemur ekkert beint í staðinn fyrir Potter. Kannski eftir einhver ár grípur nýtt æði um sig og þá kannski grípum við þá gæs, maður veit aldrei. Hætt við flugeldasýninguSpurður segist Snæbjörn ekki vera búinn að skipuleggja sérstakt kveðjuhóf til heiðurs Potter þegar síðasta bókin dettur í hús. Þegar síðasta bók kom út átti að vera flugeldasýning á flóanum þegar skipið kom inn með bókina. Yfirvöld bönnuðu það en það verður örugglega gert eitthvað til hátíðarbrigða, segir hann. Bókin kemur út á ensku fyrst og við fáum ekki handritið fyrr en bókin er komin út. Hátíðarhöldin verða fyrst og fremst þegar enska bókin kemur út. Lykill Salómons væntanlegHarry Potter er ekki eini gullkálfur Bjarts því bókaforlagið gefur einnig út bækur Dan Brown, höfundar Da Vinci-lykilsins. Ný bók frá honum, Lykill Salómons, er væntanleg um áramótin. Hann er ekki búinn að skila handriti að bókinni en það liggur í loftinu að það verði um áramótin. Hann ætlaði að skila henni í sumar en það hefur dregist, segir Snæbjörn. freyr@frettabladid.is
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira