Karpað um mat 8. desember 2006 19:17
Oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segir borgarstjóra tvísaga um þátt sinn í kaupum borgarinnar á fjórum hekturum í Norðlingaholti sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Borgarstjóri segir oddvitann hins vegar snúa út úr orðum embættismanns. Málavextir eru með þeim hætti að í tíð Þórólfs Árnasonar, fyrrverandi borgarstjóra R-listans,krafðist Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 110 milljóna fyrir tæplega 37 fermetra land sitt í Norðlingaholti. Eftir árangurslausar viðræður um við Kjartan ákvað borgin að krefjast eignarnáms. Í mars síðastliðnum komst matsnefnd eignarnámsbóta að þeirri niðurstöðu að verðmæti lóðar Kjartans væri orðið 208 milljónir króna. Þann 6. apríl lagði borgarritari og sviðsstjóri lögfræðisviðs, Kristbjörg Stephensen, fram minnisbréf þar sem hún lýsir þeirri skoðun sinni að fullt tilefni sé til að reyna á niðurstöðu matsnefndarinnar fyrir dómi, of hátt lóðaverðmæti og illa rökstutt mál skipti þar mestu. Þó verði ekki á vísann að róa um niðurstöðu dómsins. Og styrinn milli meiri- og minnihluta stendur greinilega um bréf Kristbjargar og túlkun þess. Sjálf segir hún að meirihlutinn túlki bréf hennar rétt. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar segir að málið snúist einfaldlega um ákvörðun meirihlutans í borginni að lúta dómi matsnefndarinnar og borga þar með okurverð fyrir lóð Kjartans. Verð fyrir 26 landskika á sömu slóðum sé langt fyrir neðan verðið sem borgarstjóri vilji borga fyrir lóð Kjartans. Borgarstjóri hafi leynt borgarráði ákvörðun sínum og vísi í minnisblað Kristbjargar þess efnis þó túlka megi bréf hennar og tillögur á þann veg að ekki eigi að borga svo hátt verð fyrir lóðina. Það sé óeðlilegur framgangur máls. Borgarstjóri er ekki sammála þessu og segir Dag reyna að gera orð Kristbjargar tortryggileg í þessu máli. Hátt lóðaverð sé fráfarandi meirihluta að kenna. Hann skilji borgarritara sem svo að kostnaður við dómsmál muni verða verulegur og alls ekki víst að borgin vinni málið. Þess má geta til samanburðar að Kópavogsbær hefur aldrei unað niðurstöðum matsnefndar eignarnámsbóta og ávallt farið með þær fyrir dóm.
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira