Leitar að ástinni 12. júlí 2006 15:00 Shakira Kólumbíska söngkonan er trúlofuð en það breytti ekki þeirri staðreynd að sögusagnir um ástarsamband hennar við Robbie Williams fóru á kreik. Þau neituðu þessum orðrómi bæði.
Robbie Williams hefur verið einn þekktasti popptónlistamaður Bretlands frá því að hann sagði skilið við strákasveitina Take That í upphafi tíunda áratugarins. Ástarlíf hans hefur lengi verið fjölmiðlamatur enda hefur söngvarinn átt ófáar ástkonur í gegnum tíðina. Frægast er samband hans við Nicole Appleton, fyrrum söngkonu All Saints, en þau voru trúlofuð um tíma. Það fékk mikið á Williams þegar Appleton upplýsti að hún hefði farið í fóstureyðingu því söngvarinn hefur margoft lýst því yfir að hann vilji eignast fjölskyldu. Williams hefur ekki verið við eina fjölina felldur og var um tíma með Kryddpíunni Geri Halliwell. Í ævisögu sinni sagðist Robbie seinna meir hafa sofið hjá öllum Kryddpíunum en þær hafa aldrei viljað staðfesta þá sögu. Meðal annarra ástkvenna Williams má nefna fyrirsætuna Rachel Hunter sem Robbie kolféll fyrir auk leikkonunnar Nicole Kidman en sögusagnir um samband þeirra fengust þó aldrei staðfestar. Þá var söngvarinn um tíma með Nip / Tuck leikkonunni Valerie Cruz en hætti með henni til að byrja með feimnu dóttur Ozzy Osbourne, Aimee. Heimspressan birti einnig fréttir af meintu ástarsambandi popp - kóngsins og fyrirsætunnar Naomi Campbell sem þau staðfestu fyrst en Campbell dró síðan sína frásögn tilbaka og sagðist aldrei hafa átt vingott við kappann. Isabella Trump var einnig um tíma kærasta söngvarans en hún er dóttir auðkýfingsins Donald Trump. Williams var með sjónvarpskonunni vinsælu, Samantha Mumba, auk þess sem hann átti nokkur stefnumót með plötusnúðnum Eriku North. Nýlega bárust fréttir af því að hin þokkafulla Shakira væri nýjasta heitkona söngvarans en þau neituðu bæði þeim orðrómi, komu með hina sígildu yfirlýsingu fræga fólksins að, þau væru bara vinir. Sjálfur hefur Robbie alltaf sagt að hann hefði aldrei komist yfir æskuástina sína, Rachel Gilson, og nýverið gaf Williams í skyn að hann væri hættur að stunda kynlíf, vildi heldur bara lesa góða bók. Williams hefur einnig tjáð sig um það í viðtölum að hann hafi aldrei orðið ástfangin. Ég er hættur þessu piparsveinalífi og ætla bara að finna ástina í lífi mínu, sagði Robbie ekki margt fyrir löngu og nú er bara að bíða, vona og sjá hvað gerist í þeim málum hjá Íslandsvininum Robbie Williams.
Menning Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira