Biskup Íslands braut stjórnsýslulög 27. janúar 2006 19:01
Biskup Íslands braut stjórnsýslulög við ráðningarferli sendiráðsprestsins í Lundúnum. Tengdasonur hans hreppti stöðuna. Tveir prestar sóttu um embætti prests í Lundúnum í júlí 2003, þau Sigríður Guðmarsdóttir og Sigurður Arnarson. Biskup vék í málinu, þar sem annar umsækjenda er tengdasonur hans, en skipaði þriggja manna hæfisnefnd sem hann kvað á um að myndi skila bindandi niðurstöðu. Séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup tók við skipunarvaldi biskups og fór hann að tillögu nefndarinnar, svo sem biskup hafði fyrirskipað og skipaði Sigurð Arnarson, tengdason biskups, prest í Lundúnum. Séra Sigríður undi ekki þessari málsmeðferð og skaut málinu til dómstóla. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Karl Sigurbjörnsson biskup hefði bæði verið óheimilt að framselja skipunarvald sitt til stjórnsýslunefndar, sem stofnað var til án sérstakrar lagaheimildar, og ennfremur að kveða á um að niðurstaða nefndarinnar væri bindandi. Dómurinn segir ekki unnt að útiloka að það hafi haft áhrif á endanlega ákvörðun staðgengils biskups. Dómurinn telur einsýnt að báðir umsækjendur hafi verið vel hæfir til starfans og því þykir honum ljóst að Þjóðkirkjan sé skaðabótaskyld gagnvart Sigríði vegna hugsanlegs tekjutaps. Þar sem dómurinn telur ekki unnt að útiloka að Sigríður hefði hlotið embættið ef farið hefði verið að lögum, þá telst skipun Sigurðar vera brot á jafnréttislögum sem kveða á um að skylt sé að skipa konu ef karl og kona, jafnhæf, sækja um sömu stöðuna. Dómurinn viðurkennir því skaðabótaskyldu Þjóðkirkjunnar gagnvart Sigríði og sagðist hún að lokinni dómsuppsögu bæði hissa og glöð, en að næsta skref væri að huga að hversu há skaðabótakrafa yrði sett fram. Gestur Jónsson, verjandi Þjóðkirkjunnar, sagði það gleðilegt við dóminn að ekki hefði verið fallist á kröfu sem byggði á því að misgert hefði verið við Sigríði. Skaðabótaskyldan hefði verið viðurkennd á þeirri forsendu að biskupi hafi sjálfum borið að taka ákvörðun um skipunina en ekki heimilt að samþykkja kröfu Tryggingastofnunar ríkisins um að fram færi bindandi val í hæfisnefnd.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira