Nýtt ófriðarbál í uppsiglingu um fjölmiðla 25. apríl 2006 18:37
Stjórnarandstæðingar á Alþingi segja að nýtt ófriðarbál um fjölmiðla sé í uppsiglingu. Þeir krefjast þess að ríkisstjórnin kalli frumvarp sitt um Ríkisútvarpið til baka.Mörður Árnason, Samfylkingunni, greindi frá því við upphaf þingfundar í dag að stjórnarmeirihlutinn hefði um morguninn hafnað þeirri ósk stjórnarandstöðunnar að frumvarpið um Ríkisútvarpið yrði kallað til baka og tekið til skoðunar í sumar. Hvatti Mörður stjórnina til að endurskoða afstöðu sína í ljósi yfirlýsingar Sigurðar Líndals prófessors um að vafi léki á því að nýtt fjölmiðlafrumvarp stæðist jafnræðisreglu stjórnarskrár og skoða þyrfti bæði frumvörpin í samhengi. Björgvin G. Sigurðsson sagði að fjölmiðlafrumvarpið nýja varpaði ljósi á það klúður og pólitíska klastur sem Rúv-frumvarpið væri. Hann sagði að með þessari framgöngu væru menntamálaráðherra og stjórnarmeirihlutinn að blása til nýs ófriðar um fjölmiðlamálið.Fram kom í umræðunni að í gær hefði verið bætt inn nýrri grein í fjölmiðlafrumvarpið sem meinaði Ríkisútvarpinu að eiga hlut í öðrum fjölmiðlum. Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar, greindi frá áliti sem Páll Hreinsson lagaprófessor, kynnti á fundi nefndarinnar í morgun um breytinguna, þar sem hann teldi að með henni væri stoppað upp í þann leka sem hugsanlega var gagnvart jafnræðisákvæði stjórnarskrár.Atli Gíslason varaþingmaður og hæstaréttarlögmaður varaði þingheim við hættu á lagasetningarmistökum með RÚV-frumvarpinu. Ekki væri unnt að standa að því að samþykkja lög sem kölluðu síðan á deilur fyrir dómstólum.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Sjá meira