Lífið

Æstir aðdáendur

Kidman og Urban Fengu ekki frið fyrir æstum aðdáendum á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna.
Kidman og Urban Fengu ekki frið fyrir æstum aðdáendum á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna. MYND/AP

Hin nýgiftu Nicole Kidman og Keith Urban hafa ákveðið að setjast að í heimabæ Urbans, Nash­ville í Bandaríkjunum vegna þess að þau telja sig fá meiri frið fyrir fjölmiðlum þar en annars staðar.

Ekki var það samt alveg raunin á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna, 4. júlí, þegar skötuhjúin fóru á útsýnispall í áðurnefndum bæ og voru að horfa á flugeldasýningu. Margmennið sem þar var samankomið endaði með því að snúa baki í flugeldana og taka aðeins myndir af þeim hjónum. Urban og Kidman giftu fyrir stuttu í Ástralíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.