Umhverfisráðherra dregur úrskurð langt fram yfir lögboðinn frest 11. desember 2006 18:45
Umhverfisráðherra er kominn rúmlega hálft ár fram yfir lögbundinn tveggja mánaða frest, sem hann hafði til að úrskurða um hvort brúa megi Gufufjörð og Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Sveitarstjóri Vesturbyggðar segir Vestfirðinga orðna langþreytta á að bíða eftir að ráðherra komi undan feldi.Niðurstöðu þessa máls er beðið með eftirvæntingu á Vestfjörðum enda snýst hún um það hvernig menn leysa til frambúðar einn versta farartálmann á leiðinni milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur. Miðað við umræðuna má ætla að það sé nokkuð almennur vilji meðal sveitarstjórnarmanna á Vestfjörðum að vegurinn verði lagður út með Þorskafirði og síðan yfir bæði Djúpafjörð og Gufufjörð. Skipulagsstofnun hafnaði því hins vegar í febrúarmánuði að þessi leið yrði farin, og taldi umhverfisáhrif of mikil, þar sem vegurinn myndi spilla birkiskógi í utanverðum Þorskafirði. Frestur til að kæra þá niðurstöðu til umhverfisráðherra rann út í lok mars. Athygli vekur að Vegagerðin er meðal þeirra sem kærðu en það mun vera einsdæmi. Ráðherra hefur átta vikur frá lok kærufrests til að úrskurða og hefði því lögum samkvæmt átt að útkljá deiluna í maímánuði í vor. Enn bólar hins vegar ekkert á úrskurði ráðherra en málið var fyrst í höndum Sigríðar Önnu Þórðardóttur og síðan Jónínu Bjartmarz, sem tók við lyklavöldum í júnímánuði. Jónína hefur því haft málið á sínu borði í hálft ár. Ragnar Jörundsson, sveitarstjóri Vesturbyggðar, segir Vestfirðinga orðna langþreytta á að bíða eftir því að ráðherra skríði undan feldi. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis, ber við önnum í ráðuneytinu en segir að úrskurður komi öðrum hvoru megin við áramót. Málið sé mjög umfangsmikið, kærendur óvenju margir auk þess sem leitað hafi verið sérfræðiálits utan ráðuneytis.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Sjá meira