Tekist á um hæfi yfirmanna hjá embætti Ríkislögreglustjóra 11. desember 2006 17:53
Lögmenn Baugs fullyrtu í Héraðsdómi í dag að Ríkislögreglustjóri, saksóknari Efnahagsbrotadeildar og yfirlögregluþjónn hefðu allir gert sig ótrúverðuga með yfirlýsingum um sakborninga í Baugsmálinu. Á móti var því haldið fram að fjölmiðlar hefðu snúið út úr orðum embættismanna Ríkislögreglustjóra. Þess var krafist í héraðsdómi í dag að rannsókn ríkislögreglustjóra á meintum skattsvikum Baugsmanna verði úrskurðuð ólögmæt. Lögmenn þeirra telja yfirmenn hjá embætti ríkislögreglustjóra hafa brotið gegn reglu um að sakborningar teljist saklausir uns sekt er sönnuð. Meðal annars er vísað í ummæli Haraldar Joannessen ríkislögreglustjóra í Blaðinu á síðasta ári, þar sem hann segir að sá þáttur rannsóknar Baugsmálsins sem beinist að skattamálum muni fara fyrir dóm sem skattsvikamál. Baugsmenn telja að þarna hafi ríkislögreglustjóri, svo ekki sé um villst, haldið því fram að rannsókninni sem enn er ekki lokið muni lykta með ákæru vegna skattsvika. Haraldur Johannessen neitað að koma fyrri dóm og gera grein fyrir ummælunum og hérðasdómur felldi þann úrskurð í síðustu viku að honum væri ekki skylt að bera vitni í málinu. Það kom því í hlut Jóns HB Snorrasonar að útskýra fyrir dómi í dag að blaðamaður Blaðsins hafi haft rangt eftir ríkislögreglustjóra. Þrátt fyrir að fjórtán mánuðir séu liðnir frá því ummælin birtust er það fyrst nú sem ástæða þykir til að leiðrétta þau.Lögfræðingar sakborninga í Baugsmálinu halda því ennfremur fram forsvarsmenn Ríkislögreglustjóra hafi sjálfir lýst sig vanhæfa til að fara með málið. Vísað er til þessara orða Haraldar Johannessen í fréttum Stöðvar 2 þann 11.október á síðasta ári.,,Það er hægt með rökum að halda því fram að ríkislögreglustjóraembættið sé orðið of innvolverað í þetta mál til þess að geta litið hlutlaust á þær ákvarðanir sem að þarf að taka í málinu."Það er misskilningur að þessi ummæli ríkislögreglustjóra feli í sér yfirlýsingu um vanhæfi, sagði Jón HB Snorrason. Yfirmenn embættisins geti ekki borið ábyrgð á framsetningu blaðamanna eða þeim hljómi sem fjölmiðlar dragi fram.Á það einnig við um eftirfarandi ummæli um skattaanga Baugsmálsins sem höfð eru eftir Jóni HB sjálfum í Blaðinu þann 14. nóvember síðastliðinn."Menn geta ekki valið Jón eða Gunnu til að stýra rannsókninni og hér fær enginn sérmeðferð, hvort sem hann er snauður eða ríkir og hvort sem hann afgreiðir kjötfars eða ekki."Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir það ekki hans að taka afstöðu til þess hver sé hæfur til að rannsaka meint skattalagabrot Baugsmanna í stað forsvarsmanna embættis ríkislögreglustjóra.Það kemur í hlut Eggert Óskarsson héraðdsómara að skera úr um í málinu, eða leggja mat á hæfi rannsakenda.
Mest lesið Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Fleiri fréttir Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Sjá meira