Björgunarsveitarmenn önnum kafnir á suðvesturhorninu 21. desember 2006 16:07
Björgunarsveitarmenn Landsbjargar eru nú í nokkrum óveðursútköllum á suðvesturhorninu. Í Þorlákshöfn voru þakplötur farnar að fjúka af fiskimjölsverksmiðju. Þá er stór skemma í byggingu í Keflavík en sú nýbygging er að liðast í sundur og er allt tiltækt lið frá Björgunarsveitinni Suðurnes að vinna í því verkefni. Björgunarsveitin Mannbjörg frá Þorlákshöfn er núna að festa þakplötur á Fiskimjölsverksmiðju við höfnina í Þorlákshöfn. Fiskimjölsverksmiðjan er í eigu Hólmarastar á Stokkeyri. Einnig er hluti sveitarinnar í ýmsum verkefnum, m.a. að færa fæði til búfénaðar sem ekki næst til nema á bátum. Ekki er gott að lýsa ástandinu með orðum en Ásgeir Guðmundsson, formaður Mannbjargar sagði að hann hefði aldrei áður lent í því að fullmannaður gúmmíbjörgunarbátur með utanborðsmótor hefði farið fram úr honum á vegi, eins og gerðist fyrr í dag á veginum sem liggur frá Björnskoti á Skeiðum. Í Keflavík er stór skemma, sem er í byggingu að liðast í sundur. Hún er staðsett í nýja iðnaðarhverfinu úti á bergi. Allt tiltækt lið frá Björgunarsveitinni Suðurnes hefur verið kallað út vegna þessa. Eins hefur Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík verið kölluð að nýbyggingum ofarlega í bænum til að koma í veg fyrir tjón af völdum foks. Að sögn heimamanna eru aðstæður þar gífurlega erfiðar, veður slæmt og miklar vindhviður.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sjá meira