Lítill munur á slysatíðni á 3ja og 4ra akreina vegum 7. desember 2006 18:54
Lítill munur er á slysatíðni á þriggja akreina vegum og fjögurra akreina. Fjögurra akreina vegur er hins vegar tvöfalt til þrefalt dýrari.Háværar kröfur eru um tvöföldun Suðurlandsvegar milli Reykjavíkur og Selfoss, eins og gert var við Reykjanesbraut, en því hafnað að öryggið verði bætt með þriggja akreina vegi, eins og í Svínahrauni. Um Reykjanesbraut aka nú liðlega níu þúsund bílar á sólarhring, um Vesturlandsveg á Kjalarnesi um 6.400 en um Suðurlandsveg á Hellisheiði rúmlega 6.000 bílar. Ef aðeins er horft á afkastagetu dugar 1+1 vegur öllum þessum leiðum en hann afkastar 10 til 12 þúsund bílum á sólarhring. Tveir plús einn vegur dugar allt að tuttugu þúsund bíla umferð en tveir plús tveir er ætlaður allt að 60 þúsund bíla umferð, tífalt meiri en fer um Hellisheiði. Samkvæmt tölum sem samgönguráðherra hefur kynnt, lækkar slysatíðni miðað við 100 niður í 55 við að fara í þrefaldan veg en niður í 45 við að fara í fjórfaldan veg. Munur á slysatíðni er því um tíu prósent, milli þessara tveggja lausna. Vegamálastjóri áætlar að þriggja akreina lausn milli Rauðavatns og Selfoss kosti 3-5 milljarða króna en fjögurra akreina 7 til 12 milljarða. Þær 700 milljónir króna, sem nú eru á vegaáætlun í þessu skyni, duga því skammt. Ef tíu milljarðar króna fengjust í verkefni af þessu tagi má hins vegar spyrja hvort skynsamlegt væri að setja þá alla í fjórföldun þegar þriggja akreina lausn gæti nýst til að bæta öryggi á jafnvel þrefalt lengri vegalengd. Tíu milljarðar króna gætu þannig með þriggja akreina lausn dugað til að stórbæta umferðaröryggi út frá Reykjavík bæði til Selfoss og Borgarness, en aðeins til Selfoss, ef fjögurra akreina lausn yrði valin. Og lausnirnar eru misdýrar. Sú fjögurra akreina lausn, sem samgönguráðherra kynnti nýlega á fundi, gerir ráð fyrir að með sama hætti og á þriggja akreina vegi, yrði skilið á milli akreina með víravegriði, en ekki höfð breið umferðareyja á milli, eins og á Reykjanesbraut. Þessi lausn á fjögurra akreina vegi yrði, samkvæmt tölum vegamálastjóra, mun ódýrari og aðeins 60 til 70 prósent dýrari en þriggja akreina vegur.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira