Venni „páer“ á skjáinn í haust 2. júlí 2006 10:00 Vernharð Þorleifsson Hefur skrifað grínþætti sem sýndir verða á Skjá einum næsta vetur.
Draumur júdókappans Vernharðs Þorleifsson rætist í haust þegar grínþættir sem hann skrifaði handrit að verða sýndir á Skjá einum. Fréttablaðið greindi frá þessu uppátæki Vernharðs fyrir nokkru en nú er allt að verða klappað og klárt. „Ja, ég vona að fólk taki þessu sem gríni,“ sagði Venni léttur í bragði þegar hann var beðinn um að lýsa þáttum sínum. Þeir munu heita Venni páer og fjalla um samnefndan mann sem er einkaþjálfari. Hann hefur ívið meira sjálfstraust en hann hefur efni á svo útkoman gæti orðið eitthvað í líkingu við The Office að sögn Venna. Þættirnir gerast í World Class þar sem Venni „páer“ starfar sem einkaþjálfari. Hann hefur þó bara einn kúnna svo að ekki er hægt að segja að honum gangi allt í haginn. „Venni er alltaf að leita að viðurkenningu en það gengur erfiðlega,“ segir nafni hans og skapari sem mun sjálfur leika aðalhlutverkið. „Já, ég leik Venna. Það var allt reynt til að koma í veg fyrir það en þetta varð útkoman.“ Vernharð Þorleifsson er kunnastur fyrir hæfni sína í júdó en hann hefur einnig starfað sem fasteignasali auk þess sem hann skrifaði Bakþanka í Fréttablaðið um hríð. Venni hefur eytt síðustu tveim árum í að skrifa þættina í hjáverkum. „Pilot“-þáttur var tekinn upp í fyrra og þá fóru Jón Gnarr og Álfrún Örnólfs með hlutverk. Þau verða þó ekki með í þáttaröðinni, en tökur á henni hefjast í ágúst. Þættirnir verða átta talsins og þessa dagana er verið að ganga frá ráðningu leikara. Ætla má að sýningar á Venna „páer“ hefjist á Skjá einum í október.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira