Silvía Nótt dregur sig úr sviðsljósinu 17. maí 2006 06:00 Silvía hitti finnska Eurovision-sérfræðinginn, Tomas Lundin, í veislunni í gær og urðu greinilega miklir fagnaðarfundir.
Undankeppni Eurovision keppninnar er á morgun og þá stígur Silvía Nótt á sviðið fyrir hönd Íslands. Margt hefur gengið á og Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur fylgst grannt með. Silvía Nótt mætti ekki í partí norrænu keppandanna í Eurovision í gær. Leikkonan þurfti hvíld frá kastljósi fjölmiðlanna. Silvía æfði ásamt Selmu í einkastúdíói síðdegis í gær.Silvía dró hollensku stúlkurnar í Treble inn í umræðuna er meint bresk blaðakona spurði hana af hverju hún hefði kallað þær hórur, kuntur og lauslætisdrósir í Lettlandi. Greint var frá því í öllum helstu fjölmiðlum Hollands og hafa meðal annars yfir þrjátíu þúsund skoðað atvikið á heimsasíðunni www.zoomin.tv.fréttablaðið / Valli Jónatan Garðarsson, sem fer fyrir íslensku sendinefndinni, segir að það hafi verið sameiginleg ákvörðun hennar og hópsins í kringum Silvíu að hún hvíldi sig í gær. Þetta væri gert svo hún gæti mætt á æfinguna í dag og sungið villulaust á fimmtudaginn.Silvía var umlukin myndavélum í veislu borgarstjóra Aþenu. Hún kom fjörutíu mínútum eftir að veislan byrjaði, tók stóran hring um veislusvæðið og kvaddi hálftíma síðar.fréttablaðið/Valli"Ef hún hefði þurft að gera sig klára fyrir veisluna hefði hún orðið að byrja að undirbúa sig klukkan átta í morgun," sagði Jónatan: "Við mátum það svo að skynsamlegra væri að hún hvíldi sig." Sögusagnir um veikindi stjörnunnar komust fjótt á kreik. Velti fólk vöngum yfir því hvort Silvía væri í raun veik og taldi líklegra að þetta væri einungis ein af kenjum hennar. Eftir partíið var á vörum nokkurra sænskra fjölmiðlamanna að Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem túlkar Silvíu, hefði verið flutt á sjúkrahús með niðurgang. Þar sem Silvía mætti ekki voru allra augu á Carolu. Hún söng lögin sín þrjú úr keppninni, það nýjasta, Fångad av en Stormvind og Främlig.Miðdepill alheimsins. Silvía naut mikillar athygli í veislunni og auk fjölmiðlanna fygldi henni stór hópur tökumanna sem vinna með henni að gerð sjónvarpsþáttanna á Skjá einum.Carola naut einnig mestrar athygli allra keppenda í veislu borgarstjórans kvöldinu áður. Um þrjátíu ljósmyndarar fylgdu henni hvert fótmál. Silvía fékk einnig sína athygli í veislu borgarstjórans, en þó helst frá tökuliðinu í kringum þáttinn hennar og íslenskum ljósmyndurum, en aðrir fylgdu henni einnig spölkorn úr leið í stuttu stoppi hennar í veislunni. Silvía naut einnig athygli fólksins utan girðingarinnar, sem skildi af almenning og veislugesti. Það kættist við að sjá hana þrátt fyrir neikvæða fjölmiðlaumfjöllun hér í Grikklandi.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira