Lífið

Sirrý snýr aftur á skjáinn

Næstkomandi sunnudag, 11. júní, hefur göngu sína nýr viðtalsþáttur í umsjá Sigríðar Arnardóttur - eða Sirrýjar. Þátturinn hefur fengið nafnið Örlagadagurinn.

Eins og nafnið gefur til kynna mun þátturinn fjalla um örlagaríka daga. Áhugavert fólk hefur fallist á að greina Sirrý frá "örlagadeginum" stóra í lífi sínu; degi þar sem mikil straumhvörf áttur sér stað, stór atburður, gleði- eða sorgaratburður, sem hefur haft varanleg áhrif á líf viðkomandi. Þættirnir verða 12 talsins og í hverjum þætti greinir einn áhugaverður viðmælandi frá örlagadegi sínum; á hispurslausan og innilegan hátt.

Í fyrsta þættinum af Örlagadeginum, sem sýndur verður í opinni dagskrá sunnudaginn kemur, 11. júní, ræðir Sirrý við Begga, fjögurra barna föður sem sleit samvistum við konu sína eftir 25 ára samband og kom út úr skápnum einn "örlagaríkan dag". Beggi segir frá þessum örlagadegi þegar hann gekkst við tilfinningum sínum og hóf sambúð með Pacasi frá Brasilíu. Saman eiga þeir 6 börn og heimilislífið þeirra er líflegt. Sirrý fer í veislu í verðlaunagarði þeirra og heilsar upp á börnin og vini parsins.

Aðrir "Örlagadagar" með Sirrý - í sumar verða m.a. sem hér segir: "Framkvæmdastjóri sem varð nútímamunkur", "hætti í vinnunni og hjólaði um heiminn", "vísindamaðurinn landskunni sem lenti í alvarlegu bílslysi og flutti í sveitina", "sótti dóttur sína til Kína" og "þegar hann varð hún".

Sirrý þarf vart að kynna en hún á að baki áralanga reynslu í íslenskum fjölmiðlum, jafnt í sjónvarpi, útvarpi sem tímaritaútgáfu. Sirrý stýrði spjallþættinum Fólk á Skjá einum, en áður hafði hún starfað sem ritstjóri á Vikunni, við þáttagerð fyrir Ríkisútvarpið og sem þula í Ríkissjónvarpinu.

Örlagadagurinn verður frumsýndur í opinni dagskrá á NFS og Stöð 2 á sunnudögum kl. 19.10. Þátturinn verður endursýndur á NFS á þriðjudags og föstudagskvöldum kl. 20.10 og á Stöð 2 á laugardögum kl. 16.55.

Einnig er hægt að nálgast þáttinn sem og alla dagskrá NFS á VísirVefTV á visir.is. Þar eru einnig valdir þættir af Stöð 2, Sýn og Sirkus í boði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.