Sigurður Demetz er látinn 7. apríl 2006 18:36
Sigurður Demetz Franzson, óperusöngvari og söngkennari, andaðist að morgni 7. apríl á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Hann fæddist 11. október 1912 í St. Úlrik í Grödendal í Ölpunum á landamærum Austurríkis og Ítalíu sem heitir Suður-Tíról, sonur hjónanna Franz og Mariu Demetz. Sigurður Demetz nam söng á Ítalíu og sönggáfa hans og hæfileikar vöktu athygli tónlistarmanna á borð við dr. Karl Böhm og Herbert von Karajan. Hann söng víða um Evrópu við góðan orðstír, en e.t.v. skein frægðarsól hans skærast þegar hann söng í Scala-óperunni í Mílanó á árunum í kringum 1950. Sigurður Demetz fluttist hingað til lands frá Ítalíu árið 1955 og hóf söngkennslu víða um land auk þess sem hann söng hér nokkur óperuhlutverk og á tónleikum og stjórnaði kórum. Jafnframt varð hann vinsæll fararstjóri útlendinga í kynnisferðum um landið. Ýmislegt varð Sigurði Demetz að fótakefli á ferlinum á umbrotatímum í álfunni. Styrjaldir og veikindi öftruðu honum, en hann taldi það gæfu sína að hafa borist til Íslands eins og fyrir guðlega forsjón. Frá því segir hann í ævisögu sinni sem kom út árið 1995. Sigurður Demetz var sæmdur stórriddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu söngmenntunar á Íslandi, riddarakrossi ítalska ríkisins og kjörinn heiðursborgari í fæðingarbæ sínum. Hann var verndari Nýja söngskólans Hjartansmáls. Sigurður Demetz kvæntist Þóreyju Sigríði Þórðardóttur árið 1960. Hún lést árið 1992. Systkini Sigurðar Demetz, öll yngri, eru Ulrike, læknisfrú, Ivo, forstjóri, Franz, listamaður, og Giancarlo, húsvörður, sem er látinn.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira