Sjálfvirk hringing úr bílum í 112 komin á rekspöl 10. desember 2006 20:27 Undir yfirlýsinguna skrifuðu Friðgeir Jónsson, Sturla Böðvarsson og Þórhallur Ólafsson MYND/Samgönguráðuneytið
Nú stefnir í að hérlendis verði unnt að taka upp sjálfvirka hringingu úr bílum í Neyðarlínuna. Samgönguráðuneytið, ND á Íslandi ehf. og Neyðarlínan hafa undirritað viljayfirlýsingu um að vinna sameiginlega að málinu. það á líka að þróa notkun Saga-hugbúnaðarkerfisins vegna innheimtu veggjalda og eftirlits með hvíldarákvæðum í umferðarlögum, að því er segir í sameiginlegri tilkynningu aðilanna frá í dag. Undir yfirlýsinguna skrifuðu Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Friðgeir Jónsson, framkvæmdastjóri ND á Íslandi, og Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Unnið hefur verið að því á vegum Evrópusambandsins undanfarin ár að tekinn verði upp í Evrópulöndum sjálfvirkur búnaður til að gera mögulegt að hringja sjálfvirkt úr bílum í neyðarlínu ef slys verður. Er verkefnið nefnd e-Call eða neyðarhringing. Með slíku símtali myndu viðbragðsaðilum berast strax upplýsingar um staðsetningu slyss. Gæti það flýtt mjög fyrir réttum viðbrögðum, dregið stórlega úr afleiðingum slysa og jafnvel bjargað mannslífum. Evrópusambandið vinnur að því að ríki innan sambandsins skrifi undir viljayfirlýsingu um þátttöku í verkefninu og um leið að fá bílaframleiðendur til að vera við því búna að taka upp viðkomandi tækni eigi síðar en árið 2010. Þegar hafa nokkur lönd skrifað undir viljayfirlýsinguna og ráðgerir samgönguráðherra að undirrita hana í þessari viku, að því er kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Í viljayfirlýsingunni segir að aðilar séu sammála um að skipa verkefnastjórn í byrjun næsta árs. Hlutverk hennar sé að setja fram verk- og kostnaðaráætlun um næstu skref og halda undirbúningi áfram.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“