Er ekkert lélegur í fótbolta 15. júní 2006 08:00 Frábær auglýsing Ari Matthíasson í hlutverki sínu með íslenska landsliðinu í fótbolta. "
Ég ætlaði ekki að taka þetta verkefni að mér því ég hef merkilegt nokk verið duglegur við að segja nei við auglýsingum. Svo fannst syni mínum, sem er átta ára, það vera hræðilegt að sleppa þessu þannig að ég gat ekki sagt nei. Hann uppskar líka treyju Heiðars Helgusonar sem allir landsliðsmennirnir árituðu," segir leikarinn Ari Matthíasson, sem fer á kostum í nýrri auglýsingu Icelandair. Í auglýsingunni fer Ari með hlutverk fótboltaáhugamanns sem heima í stofu lætur sig dreyma um að hann sé ein af hetjunum sínum, sjálfum landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu. Óhætt er að fullyrða að auglýsingin hafi vakið mikla athygli enda er hún sýnd grimmt meðan á HM í knattspyrnu stendur. Ari er einn af þekktari leikurum þjóðarinnar en hann starfar þó ekki sem slíkur í dag. Hann hóf störf sem framkvæmdastjóri hjá SÁÁ fyrir þremur mánuðum. "Ég reif mig upp úr leiklistinni og fór í MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Þetta er hefðbundin stjórnunarstaða hjá SÁÁ, fullt starf svo maður hleypur ekki mikið frá," segir Ari, sem er greinilega þegar kominn vel inn í málin og upplýsir blaðamann um ágæti þess starfs sem SÁÁ vinnur: "Við gerðum könnun um daginn þar sem þrjú þúsund svör fengust. Í ljós kom að 86 prósent svarenda þekktu einhvern sem á við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða. Það er því ekki seinna vænna fyrir ríkið að hysja upp um sig brækurnar og endurnýja þjónustusamninginn við SÁÁ sem er runninn út. Annars er mikil hætta á því að meðferðin sem í boði er verði ekki jafn góð og örugg." Icelandair-auglýsingin var tekin upp á æfingasvæði knattspyrnufélagsins QPR í London. Ari segir að það hafi verið mjög gaman að eyða heilum degi með landsliðsmönnunum. Hann viðurkennir líka fúslega að hann hafi ekki þurft að hafa allt of mikið fyrir leik sínum: "Já, þessi gæi er nokkuð nálægt mér. Maður hugsar stundum um það að ef aðrir hlutir hefðu ekki farið að glepja mann í menntaskóla væri maður kannski einn af þessum drengjum. Þá væri maður kannski með demantslokk í eyrunum," segir Ari hlæjandi. Ari æfði fótbolta með KR á sínum yngri árum og situr nú í stjórn KR-sports. Ari er að lokum spurður hvort hann hafi virkilega getað eitthvað í fótbolta þegar hann var ungur. "Mér fannst það. Við skulum svo bara setja punktinn þar. Nei, nei, Ég var alla vega ekkert svo lélegur."
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira