Lífið

Frændur Scissor Sisters

Trabant Plata þeirra, Emotional, fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum í nýjasta hefti Q.
Trabant Plata þeirra, Emotional, fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum í nýjasta hefti Q.

Platan Emotional með íslensku hljómsveitinni Trabant var nýverið gefin út í Evrópu af plötufyrirtækinu Southern Fried sem er í eigu Fatboy Slim. Fjallað er um plötuna í nýjasta hefti breska tónlistartímaritsins Q.

Emotional fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum í umfjöllun blaðsins og gagnrýnin er nokkuð jákvæð. Trabant er lýst sem vel smurðri vél og tónlist sveitarinnar er sögð einhvers staðar á milli Take My Breath Away með Berlín og Queen-myndbandsins I Want to Break Free.

Sú formúla er sögð ganga vel upp á Íslandi enda sé Trabant vinsælli en Coldplay hérlendis. Gagnrýnandinn John Robinson klikkir svo út með því að lýsa Trabant sem undarlegum evrópskum frændum Scissor Sisters.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.