The Beach Boys saman á nýjan leik 15. júní 2006 14:00 the beach boys Hljómsveitin The Beach Boys hefur gefið út þekkt lög á borð við Good Vibrations og I Get Around.
Eftirlifandi meðlimir hljómsveitarinnar goðsagnakenndu The Beach Boys komu saman í fyrsta sinn opinberlega í áratug er þeir tóku á móti viðurkenningu fyrir safnplötuna Sounds of Summer. Hefur platan selst í tveimur milljónum eintaka, eða í tvöföldu platínuupplagi. Brian Wilson, Mike Love og Al Jardine, sem hafa átt í deilum í gegnum árin, voru allir á staðnum. Sögðust þeir hafa leyst ágreiningsmál sín og bætti Wilson því við að ágætar líkur væru á því að þeir myndu spila saman á tónleikum í framtíðinni. Með þremenningunum við athöfnina voru gítarleikarinn fyrrverandi David Marks og Bruce Johnston sem spilaði með Mike Love og The Beach Boys hér á landi fyrir nokkrum misserum. Við athöfnina þakkaði Love Wilson fyrir framlag hans til The Beach Boys og sagði að ótrúlegir hæfileikar hans hefðu lagt grunninn að yndislegu lífi þeirra allra. Love hefur tvisvar sinnum höfðað mál gegn frænda sínum Wilson auk þess sem Jardine kærði fyrrum félaga sína í The Beach Boys árið 2001 fyrir að meina honum að spila með þeim á tónleikum. "Það koma upp ýmis vandamál og þau leysast með tímanum," sagði Jardine. The Beach Boys sló í gegn á sjöunda áratugnum með lögum á borð við Good Vibrations, I Get Around og Surfin" USA. Sveitin lagði opinberlega upp laupana árið 1998 eftir að Carl Wilson, bróðir Brian, lést. Eftir það öðluðust Love og Johnston réttinn að nafninu The Beach Boys og hafa þeir komið fram undir því nafni allar götur síðan án þeirra Wilson og Jardine.
Menning Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira