Krókódílar og antílópur á jólamatseðlinum 17. nóvember 2006 12:30 Matreiðslumaðurinn og súkkulaðið „
Jú, jú, maður er náttúrlega kolruglaður,“ segir Gunnar Garðarsson, matreiðslumaður á Café Bifröst, en hann hyggst brydda upp á skemmtilegum nýjungum á matseðlinum um jólin. Þar verður meðal annars að finna krókódílakjöt í engifer og kanil auk antílópu, matvæla sem Íslendingar eru kannski ekki vanir að sjá borin á borð fyrir sig heldur sjá kannski meira fyrir sér í nátttúrulífsþáttum eða notuð í kúrekastígvél og annan leðurfatnað. „Ég vann mikið með þetta hráefni þegar ég vann sem yfirkokkur á Hótel Lego í Danmörku en þar var krókódíllinn mjög vinsæll milliréttur,“ útskýrir Gunnar sem segist þó skilja það vel ef gestir veitingastaðarins reki upp stór augu þegar þeir sjái þessar framandi dýrategundir reiddar fram. „Krókódíllinn er hins vegar ekkert öðruvísi en annar matur,“ bætir matreiðslumaðurinn við. „Svo fannst mér líka bara tímabært að kynna eitthvað algjörlega nýtt.“ Eingöngu seldir í Legolandi Súkkulaðikubbarnir frægu sem fást eingöngu í hinum vinsæla skemmtigarði. Það er heildverslunin GV sem flytur kjötið inn en Gunnar segir það langt frá því auðvelt að fá þetta til sín. „Kjötið þarf að fara í gegnum mjög strangt dæmi,“ segir Gunnar. „Maður verður auðvitað að nýta það sem birgjarnir hafa upp á að bjóða,“ bætir kokkurinn við og hlær. Gunnar gerir þó fleira heldur en að elda framandi kjötvörur því hann á Chokolart-súkkulaðiverksmiðjuna í Danmörku. „Við framleiðum meðal annars súkkulaðikubba fyrir Lego sem eru aðeins seldir í Lego-landi,“ segir Gunnar en auk þess gera þeir hálfar golfkúlur úr súkkulaðinu. Gunnar er því réttnefndur þúsundþjalasmiður því milli þess að halda veitingasölunni gangandi á Bifröst og kynna súkkulaðið sitt, er hann þjálfari hjá sundfélaginu í Borgarnesi og var nýkominn af æfingu þegar Fréttablaðið hafði uppi á honum. „Ég hef í nógu að snúast. Þegar maður fer í sjö til þrjú-vinnu verður maður að hafa eitthvað fyrir stafni,“ segir Gunnar og hlær.
Menning Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira