Lífið

Brúðkaup ársins á Ítalíu

hjónaleysin Brúðkaup Holmes og Cruise verður væntanlega eitt það glæsilegasta í ár og mun Giorgio Armani meðal annars hanna brúðarkjól Holmes.
hjónaleysin Brúðkaup Holmes og Cruise verður væntanlega eitt það glæsilegasta í ár og mun Giorgio Armani meðal annars hanna brúðarkjól Holmes.

Tom Cruise hefur sett allt á annan endann á Ítalíu en leikarinn er nú kominn til Rómar og undirbýr brúðkaup sitt og leikkonunnar Katie Holmes.

Ítalska þjóðin stendur á öndinni yfir komu Cruise og hafa fjölmiðlar hreiðrað um sig fyrir framan Hotel Hassler í miðborg Rómar þar sem Cruise er sagður gista ásamt tíu aðstoðarmönnum sínum, móður og þremur börnum en frá þessu greinir fréttavefur BBC.

Hótelstjórnendur vildu hins vegar ekki staðfesta að Cruise væri gestur þeirra og lýstu því meðal annars yfir við AP-fréttastofuna að Cruise gisti ekki á hótelinu. Sú yfirlýsing kom ekki að sök því hundruð æstra aðdáenda söfnuðust fyrir framan anddyri hótelsins og biðu spenntir eftir því að fá að berja goðið augum. Þeim var þó vörnuð innkoma því lögreglan í borginni hélt þeim í skefjum á meðan lífverðir Cruise pössuðu upp á límósínu kappans.

Samkvæmt erlendum fréttaveitum er líklegt að giftingin fari fram í Odescalchi-kastalanum við Bracciano-vatnið en þetta er bygging frá miðri fimmtándu öldinni og þykir einstaklega glæsilegur, með stóra garða og rúmar í kringum fjórtán hundruð gesti. Bæjaryfirvöld hafa ekki viljað staðfesta eitt né neitt hvað brúðkaupið varðar og sagði bæjarstjóri Bracciano, Patrizia Riccioni, að þeim hefði einungis borist beiðni um að rýma torgið fyrir framan kastalann einhvern tímann í næstu viku.

Mikið hefur verið rætt og ritað um samband Katie Holmes og Tom Cruise en þeir voru ófáir sem héldu að þetta væri bara markaðsbrella. Cruise þótti síðan missa tökin á tilveru sinni, lét eins og óður maður í spjallþætti Opruh Winfrey og fyrr á þessu ári rifti Paramount-kvikmyndaverið samningi sínum við hann. Holmes og Cruise trúlofuðu sig í París um miðjan júní og eiga saman eitt barn, dótturina Suri, sem fæddist í apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.