Lýstu eftir horfnum félaga í tapað-fundið 15. nóvember 2006 08:00 Félagarnir fjórir Þeir Guðmundur, Ívar, Ingi og týndi vinurinn, Elvar, sem ætla að endurnýja kynnin eftir að smáauglýsing birtist í Fréttablaðinu.
Ekki er heiglum hent að vera ástfanginn og eiga hrekkjalóma fyrir vini en því kynntist Elvar Freyr Helgason. Í smáuglýsingu í Fréttablaðinu sem birtist á mánudag lýstu þrír vinir eftir Elvari og segja hann hafa tapað sér í sambandssýki. Vilja félagarnir endilega að fólk láti vita ef það heyrir í honum. "Því við gerum það ekki," stendur í auglýsingunni sem birtist undir flokknum "Tapað-fundið". "Þetta var bara sakleysislegur hrekkur," segir Guðmundur Auðunsson, forsprakki vinahópsins sem ábyrgur er fyrir þessari skemmtilegu auglýsingu. "Við höfðum bara ekki séð hann svo lengi að við ákváðum að lýsa eftir honum," bætir Guðmundur við og hlær. "Við hittumst um helgina og Elvar átti að mæta en þegar hann mætti ekki reyndum við að hringja. Við náðum engu sambandi og ákváðum að gera þetta í flýti," útskýrir Guðmundur og segir að þeir hafi vandað sig vel við að velja verstu myndina sem þeir ættu af félaga sínum. Vinirnir gættu þess þó að öruggt væri að fólk misskildi ekki auglýsinguna og færi að halda að Elvar væri í vanda staddur, hann hefði bara ekki sést meðal vina. "Mér skilst að það hafi mikið verið hringt í hann, meðal annars amma hans og afi og foreldrarnir sem hlógu mikið að þessum grikk," segir Guðmundur sem bjóst alls ekki við að auglýsingin yrði birt, hvað þá að hún myndi vekja svona mikla athygli. Að sögn Guðmundar fór Elvar strax heim úr vinnunni og tékkaði á auglýsingunni þegar símtölunum linnti ekki. "Hann áttaði sig strax á því hverjir þetta væru, hringdi í mig og skellti upp úr, tók þessu ákaflega létt," segir Guðmundur. Hann tekur hins vegar skýrt fram að þessum litla hrekk sé ekki beint gegn kærustu Elvars, hún sé yndisleg stelpa. "Smáauglýsingin virkaði hins vegar því við erum búnir að ákveða að hittast sem fyrst," segir Guðmundur.
Menning Mest lesið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ Tónlist Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Fleiri fréttir Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Sjá meira