Hugsanlegt að enginn vöxtur verði á einkaneyslu á fjórða ársfjórðungi 18. desember 2006 13:05 MYND/Heiða
Kreditkortavelta í nóvember síðastliðnum var tæplega 21 milljarður króna og jókst um 3,5 prósent milli ára samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans sem greint er frá í Morgunkorni Glitnis. Þar segir enn fremur að kortavelta hafi að aukist um 8,1 prósent frá sama tíma í fyrra sem er næstminnsti raunvöxtur á ársgrundvelli frá miðju ári 2005. Greiningardeildin bendir þó að þessar tölur gefi ekki heildarmynd af kortanotkun heimilanna því einnig verði að taka tillit til debetkortaveltu. Þróunin undanfarið virðist hafa verið sú að almenningur noti í auknum mæli kreditkort á sama tíma og notkun debetkorta fari minnkandi en hún reyndist þremur prósentum minni að raunvirði í nóvember en á sama tíma í fyrra. Þegar kreditkortavelta og debetkortavelta eru lögð saman myndar það gagnlegan kvarða fyrir þróun einkaneyslu að sögn greiningadeildar Glitnis. Samanlagt hafi raunvöxtur þessarar veltu verið 2,7 prósent milli ára og hafi hann ekki verið minni frá árslokum 2002. Ef miðað sé við tölur um kortaveltu í október og nóvember megi þannig ætla að vöxtur einkaneyslu frá fyrra ári á síðasta fjórðungi ársins reynist enn minni en raunin var á þriðja fjórðungi. Jafnvel megi ætla að vöxturinn verði lítill sem enginn. Segir greiningadeildin að þessi þróun sé í takti við þjóðhagsspá henanr frá liðnum ágúst. Hún telji að áfram muni draga úr vexti einkaneyslu og að hún standi í stað eða dragist nokkuð saman á næsta ári.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Sjá meira