Illugi Jökuls mætir næturverðinum 23. mars 2006 17:46
Báðir mæta þeir Illugi og Ágúst til leiks í fyrsta sinn nú í 16 manna úrslitum en þeir voru svo lánsamir að sitja hjá í fyrstu umferð. Illuga Jökulsson þarf vart að kynna. Hann hefur um árabil getið sér gott orð fyrir ritstörf og sem fjölmiðlamaður. Þá hefur hann allmikla reynslu af þátttöku í spurningakeppnum en skemmst er að minnast þess er Illugi var dómari og spurningahöfundur fyrir Gettu betur. Andstæðingur hans Ágúst Örn er óskrifað blað á sviði, sem að sjálfsögðu gerir viðureignina algjörlega óútreiknanlega og fyrir vikið ennþá meira spennandi. Báðir eiga það sameiginlegt að vera "sjálfmenntaðir" í heimsins fræðum og vitneskju, eins og sagt er, en ólíkt flestum öðrum keppendum eru hvorugur langskólagenginn. Illugi JökulssonIllugi er 45 ára með landspróf frá Hagaskóla frá árinu 1975. Helstu áhugamál sín segir hann vera skórækt og húsasmíði en sérsviðin hinsvegar engin. Sjálfur gerir hann lítið úr fyrri afrekum á spurningasviðinu en hann rámar í að hann hafi staðið sig vel í spurningakeppni Þjóðviljans fyrir tuttugu árum síðan. Ágúst Örn GíslasonÁgúst Örn er 29 ára gamall og starfar sem næturvörður á Kleppi. Helstu áhugamál sín segir hann vera vandamál heimsins en hann á erfiðara með að nefna sérsvið sín. Fyrri afrek á sviði spurningakeppna segir hann vera nokkra frækna sigra í Trivial Pursuit. Í síðasta þætti vann Mörður Árnason nokkuð öruggan sigur á Stefáni Halldórssyni og tryggði sér þar með áframhaldandi þátttökurétt í Meistaranum og sæti í 8 manna úrslitu. Þeir sem áður höfðu tryggt sér þátttökurétt í 8 manna úrslitum eru Erlingur Sigurðsson sem lagði Ólínu Þorðvarðardóttur, Steinþór H. Arnsteinsson, sem lagði Björn Guðbrand Jónsson, Kristján Guy Burgess, sem lagði Sævar Helga Bragason, Jónas Örn Helgason, sem lagði Hauk Harðarson og Snorri Sigurðsson sem lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur. Ein viðureign er eftir í 16 manna úrslitum og fer hún fram að viku liðinni. Þá mætast tveir sigurvegara úr fyrstu umferð: Inga Þóra Ingvardóttir - Friðbjörn Garðarsson Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var á dögunum, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV visis.is. Einnig skal bent á vefsíðu þáttarins: www.visir.is/meistarinn Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur, léttir spurningaleikir í boði og síðast en ekki síst þá bloggar Logi Bergmann reglulega um keppnina, spáir í spilin og greinir frá ýmsu kræsilegu sem ekki kemur fram í þáttunum sjálfum. Einvígi upp á 5 milljónir króna Meistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþátt," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár. Markmiðið með Meistaranum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum lansins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattanef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða.
Meistarinn Mest lesið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira