Eðlilegt að gera tilkall til ráðherraembættis 27. nóvember 2006 18:30
Kristján Þór Júlíusson var gestur Kristjáns Más Unnarssonar í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. Hann lætur af embætti bæjarstjóra á Akureyri innan skamms, eftir sigur hans í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í gær. Kristján Þór telur eðlilegt að oddviti flokksins í kjördæminu gegni ráðherraembætti, verði flokkurinn í stjórn að loknum kosningum. Kristján Þór Júlíusson er nýr oddviti Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi. Hann fékk örugga kosningu í fyrsta sætið í prófkjöri flokksins um helgina, en þingflokksformaðurinn Arnbjörg Sveinsdóttir lenti í öðru sæti og nýliðin Ólöf Nordal í því þriðja. Það liggur því fyrir að Kristján Þór hætti sem bæjarstjóri. Sjálfstæðismenn hafa ekki tekið ákvörðun um hver leysir hann af hólmi í bæjarstjórastólnum, en næstur á lista flokksins í bænum er Sigrún Björk Jakobsdóttir. Kristján Þór tekur við oddvitasætinu af Halldóri Blöndal, formanni utanríkismálanefndar, sem áður gengdi embætti samgönguráðherra og forseta Alþingis. Kristján Þór segir að sér þyki eðlilegt að forystumaður flokksins í Norðausturkjördæmi fái ráðherraembætti. Menn séu í stjórnmálum til að komast til áhrifa. Fyrst verði flokkurinn hins vegar að ná þeim árangri í kosningum að hann verði í stöðu til að taka þátt í myndun ríkisstjórnar. Formaður Framsóknarflokksins lýsti því yfir á miðstjórnarfundi flokksins um helgina að innrásin í Írak hafi verið mistök og ranglega staðið að ákvörðun um stuðning Íslands við hana. Sjálfstæðismenn hafa hins vegar staðið fast á því að ákvörðunin hafi verið rétt miðað við þær forsendur sem lágu að baki henni. "Ég hef sagt það sjálfur að stuðningurinn við innrásina hafi verið mistök," sagði Kristján Þór. Það væri þannig með öll mannanna verk að það væri gott að fara yfir þau öðru hvoru.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira