Innlent

Ráðningu fagstjóra mótmælt

Kona sem unnið hefur í sjö ár hjá Umhverfisstofnun fékk ekki starf fagstjóra hjá stofnuninni heldur karlmaður sem aðeins hafði starfað þar í um þrjár vikur. Þessu hefur nokkur fjöldi starfsmanna stofnunarinnar mótmælt með undirskriftalista.

Davíð Egilsson forstjóri Umhverfisstofnunar fékk afhentan undirskriftarlista með nöfnum 35 til 40 starfsmanna þar sem þeir mótmæltu hvernig staðið var að ráðningu fagstjóra.

Staðan var aðeins auglýst innan stofnunarinnar en ekki opinberlega eins og ber að gera. Tveir sóttu um stöðuna, kona með verkfræðimenntun sem unnið hefur hjá Umhverfisstofnun í sjö ár og karlmaður menntaður líffræðingur sem aðeins hafði unnið hjá stofnuninni í um þrjár vikur. Þrátt fyrir reynslu og menntun konunnar fékk karlmaðurinn starfið en í auglýsingunni var verkfræðimenntun talin æskileg.

Davíð sagðist kjósa að ræða starfsmannamál ekki á opinberum vettvangi, þau væru best leyst innandyra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×