Deildarstjórinn hjá Landsvirkjun snýr aftur og mætir nú Merði Árnasyni 16. mars 2006 10:00
Stefán Már Halldórsson og Mörður Árnason mætast í sjöttu viðureign 16 manna úrslita í spurningaþættinum Meistaranum á Stöð 2 fimmtudaginn 16. mars. Stefán Már mætir nú til leiks í annað sinn en hann lagði Gísla Tryggvason talsmann neytenda næsta örugglega í fyrstu umferð. Að þessu sinni mætir hann heldur ekki neinum aukvisa því andstæðingur hans er enginn annar en Mörður Árnason alþingismaður, íslenskufræðingur og annálaður spurningahaukur. Skemmst er að minnast þess er Mörður fór með glæsilegan sigur úr bítum í geysierfiðri spurningakeppni Ólafs B. Guðnasonar á Talstöðinni "Er það svo". Þar sýndi Mörður svo um munaði gríðarlega yfirgripsmikla þekkingu og það sem meira er, stáltaugar, sem vafalítið munu nýtast honum vel í viðureigninni við Stefán, sem þegar hefur sýnt og sannað að hann er erfiður andstæðingur. Framundan er því hin áhugaverðasta rimma. Mörður ÁrnasonMörður er sem fyrr segir íslenskufræðingur að mennt. Hann er 52 ára gamall og segir helstu áhugamál sín vera pólitík, mál og málfræði, sögu, skíðagöngu, náttúrufræði, umhverfismál og fótbolta. Sérsviðin segir hann "engin sérstök umfram þau sem starf, menntun og áhugamál leiða til." Stefán Már HalldórssonStefán Már starfar sem deildarstjóri starfskjaradeildar Landsvirkjunar. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík frá 1969 og stundaði nám í þjóðfélagsfræðum við Háskóla Íslands. Stefán Már er 56 ára að aldri og helstu áhugamál hans eru tónlist, bridge, ferðalög, veiðar, kvikmyndir og bókmenntir. Hann er félagi í karlakórnum Fóstbræðrum, til 24 ára. Sérsvið sín segir Stefán Már vera sitt lítið af hverju í hinu og hann segist aldrei áður hafa tekið þátt í spurningakeppni í fjölmiðlum. Í síðasta þætti vann Erlingur Sigurðsson frækinn sigur á Ólínu Þorvarðardóttur og tryggði sér þar með áframhaldandi þátttökurétt og sæti í 8 manna úrslitum. Þeir sem áður höfðu tryggt sér þátttökurétt í 8 manna úrslitum eru Steinþór H. Arnsteinsson, sem lagði Björn Guðbrand Jónsson, Kristján Guy Burgess, sem lagði Sævar Helga Bragason, Jónas Örn Helgason, sem lagði Hauk Harðarson og Snorri Sigurðsson sem lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur. Næstu viðureignir eru sem hér segir: Illugi Jökulsson - Ágúst Gíslason Inga Þóra Ingvardóttir - Friðbjörn Garðarsson Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var á dögunum, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV. Einvígi upp á 5 milljónir krónaMeistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþátt," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár. Markmiðið með Meistaranum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum landsins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattarnef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða.
Meistarinn Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Sjá meira