Starfsmannaleigum gæti fækkað með tilkomu nýrra laga 31. janúar 2006 21:03
Vinnumálastofnun reiknar með að ný lög um starfsmannaleigur verði til þess að margar þeirra leggi upp laupana. Hinar verði undir ströngu eftirliti og verði lokað ef þær misstígi sig. Vinnumálastofnun veit af því að á annan tug starfsmannaleiga starfa hér á landi. Á miðnætti í nótt rennur út frestur hjá þeim til þess að skrá sig hjá stofnuninni. Um miðjan dag í dag höfðu aðeins tvær skráð sig. Undanfarin ár hafa mörg hundruð erlendir verkamenn verið við störf víðs vegar um Ísland án þess að nokkur opinber aðili hafi haft tölu á þeim eða vitað hvað þeir voru að gera. Með nýju lögunum sem sett voru á Alþingi er tekið fyrir þetta. Lögin sem taka gildi 1. febrúar eiga að koma í veg fyrir að hér á landi sé fólk í vinnu án tilskilinna leyfa. Þau eiga einnig að koma í veg fyrir að verkafólk sé hlunnfarið af starfsmannaleigum sem eru jafn misjafnar og þær eru margar. Nýjar reglur gera miklu einfaldara og fljótlegra fyrir löglega aðila að fá atvinnuleyfi afgreidd. Vinnumálastofnun á von á því að það og stórlega aukið eftirlit verði til þess að starfsmannaleigum muni fækka talsvert. Starfsmannaleigurnar verða að gangast undir heilmikla skráningarskyldu sem gerir tiltölulega auðvelt að fylgjast með því að þær fari að lögum og reglum. Þær verða einnig að beygja sig undir margvísleg sérákvæði, til dæmis að hér á landi gildi íslenskir kjarasamningar. Því sé ekki hætta á því að hér gerist það sama og í Svíþjóð þar sem litháísk starfsmannaleiga reki umfangsmikla starfsemi á litháískum launakjörum. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar segir að hin nýju lög og samvinna við Samtök atvinnulífsins bindi enda á það ófremdarástand sem verið hefur í þessum málum undanfarin ár.
Fréttir Innlent Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira