Lánað tónlist í fjörtíu ár 3. júní 2006 08:00 bókasafn hafnarfjarðar Innan Bókasafns Hafnarfjarðar er að finna stærstu tónlistardeild landsins á almennu bókasafni.
Í árslok verða fjörutíu ár ár liðin frá því að tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar hóf að lána út plötur. Deildin, sem sú stærsta sinnar tegundar, var lengi vel sú eina sem gerði slíkt á íslensku almenningsbókasafni. Á deildinni er að finna um það bil 35.000 safngögn; vínylplötur, geisladiska, myndbönd, DVD-mynddiska, bækur og nótur. Nánast allt er þetta til útláns. Aðeins Ríkisútvarpið á stærra vínylplötusafn en það er aftur á móti ekki til útláns hjá þeim. Þetta er allt saman að þakka Friðriki Bjarnasyni tónskáldi og fyrrverandi organista í Hafnarfirði og eiginkonu hans Guðlaugu Pétursdóttur. Þau arfleittu Hafnarfjarðarbæ að stórum hluta eigna sinna með því skilyrði að það yrði stofnað þetta safn, segir Valdimar Pálsson, forstöðumaður tónlistardeildarinnar. Þau eiga heiðurinn að þjóðsöng okkar Hafnfirðinga, Þú hýri Hafnarfjörður. Friðrik samdi líka lög á borð við Í Hlíðarendakoti og Hafið bláa hafið. Það eru ekki allir sem vita hver maðurinn var en þau hjónin gerðu bænum og okkur mikið gagn með þessari gjöf sinni, segir Valdimar, sem hefur starfað á bókasafninu í sex ár. Á heimasíðu Bókasafns Hafnarfjardar, www.hafnarfjordur.is/bokasafn/, er uppfært mánaðarlega allt það nýja efni sem kemur inn. Ætti hinn almenni tónlistaráhugamaður að finna eitthvað við sitt hæfi því úrvalið er mikið. Lögð er mikil áhersla á jaðartónlist hverskonar auk sígildrar tónlistar og alltaf er að bætast við úrvalið í heimstónlist, djassi, klassík og indírokki, svo eitthvað sé nefnt.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira