Lífið

Oasis á toppnum

oasis Bræðurnir Liam og Noel Gallagher eru forsprakkar hljómsveitarinnar Oasis.
oasis Bræðurnir Liam og Noel Gallagher eru forsprakkar hljómsveitarinnar Oasis.

Fyrsta plata ensku hljómsveitarinnar Oasis, Definitely Maybe frá árinu 1994, hefur verið kjörin besta plata allra tíma.

Um 40 þúsund tónlistaráhugamenn tóku þátt í valinu sem tímaritin NME og British Hit Singles and Albums stóðu fyrir.

Í öðru sæti var hin sígilda Sgt Peppers" Lonely Hearts Club Band með Bítlunum og í því þriðja var Revolver, einnig með Bítlunum. Radiohead lenti í fjórða sæti með OK Computer og í því fimmta varð önnur plata Oasis, (What"s the Story) Morning Glory.

Nýjasta platan á listanum var Up the Bracket með The Libertines, gömlu hljómsveitinni hans Pete Doherty, sem lenti í 15. sæti.

Aðeins tvær bandarískar hljómsveitir komust á topp 20 listann; Nirvana og The Strokes með plöturnar Nevermind og Is this it? Lentu þær í 5. og 20. sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.