Í suðrænum blæ 14. júlí 2006 14:00 Örvar Kristjánsson. Margir hafa beðið spenntir eftir nýrri plötu frá Örvari Kristjánssyni enda fjórtán ár síðan hann gaf síðast út plötu.
Harmonikkuleikarinn Örvar Kristjánsson hefur sent frá sér nýja plötu sem heitir Í suðurlöndum. Ein fjórtán ár eru liðin frá því að nikkuleikarinn snjalli sendi síðast frá sér plötu. "Platan hefur verið í bígerð í fjögur ár en hún er ekki hefðbundin harmonikkuplata því það er sungið í öllum lögum," segir Örvar sem syngur flest lögin sjálfur. "Svo eru nokkrir gestasöngvarar til dæmis Sigga Beinteins og Sigrún Eva svo einhverjir séu nefndir." Í suðurlöndum er, eins og nafnið gefur til kynna, öll með suðrænum blæ. Örvar gaf síðast út plötuna Rósina. Hann segir vinnuna við nýju plötuna hafa verið talsvert öðruvísi. "Það er allt öðruvísi að gefa út plötu núna. Tæknin sem er notuð við upptökur hefur til dæmis breyst mikið," segir Örvar en hann gefur sjálfur út plötuna ásamt Jóhanni Birgissyni. Jóhann leikur þess utan inn á plötuna sem og þeir feðgar Grétar Örvarsson og Kristján Grétarsson, sonur og sonarsonur Örvars. Síðustu fjórtán ár hefur Örvar verið með annan fótinn á Kanaríeyjum þar sem hann sér fyrir sér með því að þenja nikkuna. "Yfir vetrartímann dvel ég á Kanarí-eyjum. Ég spilaði hjá Klöru í Cosmos í tíu ár en fór svo yfir á norskan bar," segir Örvar og lofar Norðmennina upp í hástert. "Þetta er mikil harmonikkuþjóð en það er líka gaman að spila fyrir Íslendingana. Ég er eiginlega orðinn fastur punktur í tilverunni á Kanarí og ég kann alveg ofsalega vel við mig þar. Ég myndi ekki vilja breyta þessu mynstri."
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira