Lögregla og sýslumaður banna Klámkvöld á Traffic 20. janúar 2006 19:52 Mynd/Þorgils
Lögregla og sýslumaður í Reykjanesbæ hafa bannað skemmtistaðnum Traffic að halda klámkvöld sem vera átti annað kvöld. Skipuleggjendur kvöldsins harma bannið og segja ekkert ólöglegt eiga sér stað á klámkvöldinu. Þeir eru þó ekki af baki dottnir og hafa í hyggju að halda samskonar kvöld á öðrum skemmtistað í bænum. Bannið tók gildi í dag en skipuleggjendum klámkvöldsins varð kunnugt um fyrirhugaðar aðgerðir lögregluyfirvalda í gær, svo engir miðar voru settir í forsölu eins og til stóð. Skippuleggjendur kvöldsins hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma aðgerðir lögreglunnar og sýslumanns. Skipuleggjendur telja að kvöldið, skipulagning þess og/eða auglýsingar á því hafi ekki brotið nein lög. Þeir benda á að klámkvöld hafi verið haldið árlega á Traffic síðan árið 2001 og fram til þessa hafi ekki verið sett út á það, enda hafi aldrei neitt ólöglegt farið fram á þessum kvöldum. Þá segir einnig í yfirlýsingunni að engin kvenfyrirlytning eigi sér stað á klámkvöldinu, líkt og margir vilji halda. Klámkvöldin séu haldin fólki til skemmtunar. Skipuleggjendur klámkvöldsins hyggjast standa fyrir Bláu kvöldi á skemmtistaðnum Hápunktinum í Keflavík annað kvöld. Að þeirra sögn verður dagskráin með sama sniði og til stóð en nafnið á kvöldinu er annað, sem og staðsetningin. Karl Hermannsson, yfirlögregluþjónn í Reykjanesbæ, segir margar ástæður fyrir því að klámkvöldið hefur verið bannað, en skemmtistaðurinn hefur verið sviptur skemmtanaleyfinu tímabundið. Hann segir að nokkuð hafi verið um að fólk undir aldri hafi verið hleypt inn á skemmtistaðinn og margir hafi einnig haft samband við lögregluna, almennir borgarar sem ekki voru alls kosta sáttir við klámkvöldið. Fyrirhuguð skemmtun hafi því verið kornið sem fyllti mælirinn. Eigandi skemmtistaðarins Traffic, Jósep Þorbjörnsson, vildi ekki koma í viðtal vegna þessa en sagði að hann hefði fengið vilyrði frá lögreglunni um endurnýjun á skemmtanaleyfinu eftir helgi, jafnvel fyrr. Yfirlýsing skipuleggjenda er eftirfarandi: "Skipuleggjendur Klámkvöldsins harma þá ákvörðun lögreglunnar í Keflavík að banna skemmtunina sem átti að fara fram annað kvöld. Við teljum að kvöldið, skipulagning þess og/eða auglýsingar á því hafi ekki brotið nein lög. Klámkvöldið hefur verið haldið síðan 2001 og hefur lögregla ekki sett út á það sem hefur farið fram á kvöldinu frá byrjun. Við viljum ítreka það að ekkert ólöglegt hefur eða mun fara fram á þessum kvöldum. Lögreglan setur aðeins út á auglýsingaplakat kvöldsins en ekki skemmtunina sjálfa. Við viljum einnig að það komi fram að í Klámkvöldinu felst engin kvenfyrirlitning eins og margir hafa viljað halda fram. Kvöldið átti aðeins að vera haldið öðrum til skemmtunar og hafa gestir kvöldsins komið og farið ánægðir í þau fjögur ár sem það hefur verið haldið. Skipuleggjendur Klámkvöldsins vilja jafnframt taka það fram að Blátt kvöld verður haldið á skemmtistaðnum Hápunktinum í Keflavík annað kvöld. Kveðja, Skipuleggjendur Klámkvöldsins
Fréttir Innlent Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira