Innlent

Gera þarf rannsóknir á stærð loðnustofnsins áður en talað er um hrun

Gísli S Gíslason hafnarstjóri afhendir Sigurði Bjarnasyni skipstjóra á Björgu Jónsdóttir vegna fyrstu loðnunnar.
Gísli S Gíslason hafnarstjóri afhendir Sigurði Bjarnasyni skipstjóra á Björgu Jónsdóttir vegna fyrstu loðnunnar. MYND/SVN

Aðalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, þar sem fyrstu loðnu ársins þar í bæ var landað í dag, segir að gera þurfi rannsóknir á áhrifum flotveiða og stærð loðnustofnsins áður en sleggjudómar um hrun stofnsins séu settir fram.

Í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag sagði Magnús Þór Hafsteinsson alþingismaður að hugsanlega væri um hrun loðnustofnsins að ræða og að stöðvi ætti loðnuveiðar. Aðalsteinn segir hins vegar útgerðarmenn hafa mestan hag af því að stofninn sé vel nýttur. Enginn viti um ástand hans fyrr en hann hafi verið rannsakaður og þetta séu litlar veiðar sem stundaðar séu nú auk þess sem þær gegni einnig rannsóknahlutverki. Þá viti hann ekki hvort um hrun stofnsins sé að ræða, fiskifræðingar Hafrannsóknastofnunar muni kanna það, mæla stofninn og ákveða hve mikið megi taka úr honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×