Iðnskólarnir eignast kortaútgáfu Landmælinga 29. desember 2006 11:56 Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands með eitt kortanna sem Iðnmennt kaupir. MYND/Skessuhorn
Iðnskólar landsins eignast að líkindum landakortaútgáfu Landmælinga Íslands þegar ný lög um Landmælingar Íslands taka gildi um áramótin og stofnunin hættir útgáfu og sölu landakorta. Iðnmennt ses. átti hæsta tilboðið í landakortaútgáfuna, sem Ríkiskaup auglýsti til sölu fyrir skömmu. Gengið verður frá samningum um söluna á næstu dögum. Skessuhorn - Vesturlandsvefurinn sagði frá þessu í gær, en Landmælingar Íslands eru staðsettar á Akranesi. Iðnmennt kaupir væntanlega lager stofnunarinnar af prentuðum kortum og geisladiskum auk nokkurra útgáfugrunna vinsælla ferðakorta fyrir tæpar 30 milljónir króna. Alls bárust tilboð frá sex aðilum. Iðnmennt ses. bauð í alla grunnana saman tæpar 29,9 milljónir króna og átti að auki hæsta tilboð í fjóra af fimm flokkum útboðsins. Að sögn Magnúsar G. Sigurgeirssonar verkefnisstjóra hjá Ríkiskaupum hefur tilboði Iðnmenntar verið tekið og liggur samningur um kaupin fyrir sem væntanlega verður gengið frá á næstu dögum. Aðrir aðilar sem buðu í einstaka þætti voru Steingrímur Benediktsson, Loftmyndir ehf, Edda útgáfa hf., Hrafnkell Á. Proppé og Sigríður Skúladóttir. Iðnmennt ses. var stofnuð árið 1999 úr Sambandi iðnmenntaskóla og IÐNÚ bókaútgáfu sem höfðu þá starfað í 50 ár. Stofnendur Iðnmenntar, sem er sjálfseignarstofnun, voru fimmtán aðildarskólar Sambands iðnmenntaskóla.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Sjá meira