Allt að áttatíu tonn af olíu hafa lekið úr Wilson Muuga 28. desember 2006 12:04
Nú liggur fyrir að sjötíu til áttatíu tonn af olíu hafa lekið úr flutningaskipinu Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes. Dæling úr skipinu hefur gengið vel og er henni að ljúka. Þessi leki er í samræmi við það sem sérfræðingur áætlaði rétt fyrir jól og við greindum þá frá. Annarsvegar er um að ræða að minnstakosti 60 tonn af þeim 70 tonnum af svartolíu, sem voru í botngeymum skipsins og hinsvegar hátt í 15 tonn af gasolíu, sem var í geymum undir aðalvélinni. Svo virðist sem hafrótið á strandstað hafi náð að þeyta svartolíuna og dreifa henni á haf út því sáralítillar mengunar hefur orðið vart. Talið er að hátt í tíu tonn af svartolíu svamli enn í lestum skipsins og verður að beita öðrum aðferðum en nú er beitt við að ná henni. Dæling úr hliðargeymum hefur hinsvegar gengið vel og er nú búið að dæla 90 tonnum af svartolíu, ásamt glussa og smurolíu, úr þeim. Þeirri dælingu verður væntanlega lokið um eða eftir hádegi og þar með verður svonefndu bráðaástandi lokið og við tekur fín hreinsun og svo niðurrif skipsins. Átta manna hópur um borð, hefur unnið nær sleitulaust að dælingunni í rúma tvo sólarhringa.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira