Hart deilt á utanríkisráðherra 5. apríl 2006 15:58 Geir H. Haarde utanríkisráðherra.
Stjórnarandstæðingar deildu á utanríkisráðherra við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa ekki nægilegt samráð um gang mála í varnarviðræðum við Bandaríkin. Utanríkisráðherra sagði að það mætti ef til vill saka sig um margt en ekki þó það að hafa ekki nægilegt samráð við þingnefndir.Össur Skarphéðinsson, fullltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd, hóf umræðuna. Hann gagnrýndi að stjórnvöld hefðu ekki upplýst utanríkismálanefnd um hvað kom fram á fundi erindreka Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál síðasta föstudag. Hann sagði að ef til vill væri tregða ráðamanna til að upplýsa utanríkismálanefnd um stöðu mála til kominn vegna þess að skiptar skoðanir væru hjá forsætisráðherra og utanríkisráðherra á stöðunni og hvað skildi gera.Jón Gunnarsson flokksbróðir hans tók undir gagnrýnina og velti fyrir sér hver ætti að kveða upp úr um hvenær utanríkisráðherra skyldi hafa samráð við utanríkismálanefnd. Hann sagði að formaður utanríkismálanefndar virtist helst líta á það sem sitt hlutverk að bíða eftir að utanríkisráðherra teldi sig þurfa að segja nefndinni eitthvað. Utanríkisráðherra biði svo eftir því að eitthvað kæmi fram hjá Bandaríkjamönnum og embættismenn Bandaríkjastjórnar kæmu ekki fram með margt. Á meðan gerðist svo ekkert.Utanríkisráðherra andmælti því að hann hefði ekki haft nægilegt samráð við utanríkismálanefnd. Hann sagði að það mætti ef til vill saka sig um eitt og annað á sínum ráðherraferli, en það að saka hann um ófullnægjandi samráð við þingnefndir næði ekki nokkurri átt.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Fleiri fréttir Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Sjá meira