Innlent

Kvóti nýttur til sjóstangaveiða

Nýtt útgerðarmynstur leit dagsins ljós á Tálknafirði í gær þegar níu Þjóðverjar réru til fiskjar á nokkrum hraðfiskibátum og veiddu af kvótum þeirra, en útgerðarmennirnir sátu heima í stofu og horðu á. Þetta er fyrsti hópurinn af mörgum, sem væntanlegir eru till Tálknafjarðar í sumar til sjóstangveiða og má hver veiðimaður taka tuttugu kíló af fiski með sér heim til Þýskalands. Nú þegar hafa fjögur hundruð Þjóðverjar boðað komu sína til þessara veiða í sumar, sem er langt umfram væntingar heimamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×