Lífið

Ein af þeim svölustu í heimi

Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir og Jón Sæmundur eiga heiðurinn að Liborius en hönnun þeirra beggja er seld í búðinni ásamt fleiri góðum vörumerkjum.
Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir og Jón Sæmundur eiga heiðurinn að Liborius en hönnun þeirra beggja er seld í búðinni ásamt fleiri góðum vörumerkjum. MYND/Hörður

Tískuvöruverslunin Liborius hefur vakið mikla athygli þrátt fyrir að vera aðeins rétt mánaðargömul. Nú hefur vefsíðan Coolhunting.com sett Liborius á lista meðal svölustu hluta í heiminum í dag.

Coolhunting.com uppfræðir fólk, eins og nafn síðunnar gefur til kynna, um það nýjasta og svalasta sem er að gerast heiminum í dag. Þar getur verið um að ræða verslanir, tónlist eða ferðamannastaði, allt milli himins og jarðar. Það er því mikill heiður að komast inn á þess síðu.

Liborius er í eigu Jóns Sæmundar Auðarsonar og með honum er stílistinn og fatahönnuðurinn Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir sem sér um öll innkaup. Á síðunni er sagt að Liborius sé jaðar-tískuvöruverslun Íslands og greint er frá því að Jón Sæmundur sé frægur fyrir fatamerkið sitt Dead sem einnig er selt í búðinni.

„Ég er himinlifandi yfir þessum fregnum og þetta sýnir bara að við erum að gera rétta hluti," segir Jón Sæmundur þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Jón Sæmundur segir að búðin hafi gengið framar öllum vonum á fyrsta mánuðinum og stefna þau enn hærra og eru með fullt af hlutum í burðarliðnum.

Auk þess er sagt á heimasíðunni að Liborius sé ekki bara fatabúð, þar séu líka haldnir tónleikar og annars konar uppákomur á þar til gerðu sviði sem er inni í búðinni. Það gerir búðina að mati Coolhunting sérstæða og stendur hún því feti framar.

Liborius er ekki bara fatabúð því þar eru haldnar uppá-komur á borð við tónleika og myndlistarsýningar og vakti það athygli penna coolhunting.com síðunnar.


..





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.