Brúðkaup ársins á Ítalíu 15. nóvember 2006 10:30 hjónaleysin Brúðkaup Holmes og Cruise verður væntanlega eitt það glæsilegasta í ár og mun Giorgio Armani meðal annars hanna brúðarkjól Holmes.
Tom Cruise hefur sett allt á annan endann á Ítalíu en leikarinn er nú kominn til Rómar og undirbýr brúðkaup sitt og leikkonunnar Katie Holmes. Ítalska þjóðin stendur á öndinni yfir komu Cruise og hafa fjölmiðlar hreiðrað um sig fyrir framan Hotel Hassler í miðborg Rómar þar sem Cruise er sagður gista ásamt tíu aðstoðarmönnum sínum, móður og þremur börnum en frá þessu greinir fréttavefur BBC. Hótelstjórnendur vildu hins vegar ekki staðfesta að Cruise væri gestur þeirra og lýstu því meðal annars yfir við AP-fréttastofuna að Cruise gisti ekki á hótelinu. Sú yfirlýsing kom ekki að sök því hundruð æstra aðdáenda söfnuðust fyrir framan anddyri hótelsins og biðu spenntir eftir því að fá að berja goðið augum. Þeim var þó vörnuð innkoma því lögreglan í borginni hélt þeim í skefjum á meðan lífverðir Cruise pössuðu upp á límósínu kappans. Samkvæmt erlendum fréttaveitum er líklegt að giftingin fari fram í Odescalchi-kastalanum við Bracciano-vatnið en þetta er bygging frá miðri fimmtándu öldinni og þykir einstaklega glæsilegur, með stóra garða og rúmar í kringum fjórtán hundruð gesti. Bæjaryfirvöld hafa ekki viljað staðfesta eitt né neitt hvað brúðkaupið varðar og sagði bæjarstjóri Bracciano, Patrizia Riccioni, að þeim hefði einungis borist beiðni um að rýma torgið fyrir framan kastalann einhvern tímann í næstu viku. Mikið hefur verið rætt og ritað um samband Katie Holmes og Tom Cruise en þeir voru ófáir sem héldu að þetta væri bara markaðsbrella. Cruise þótti síðan missa tökin á tilveru sinni, lét eins og óður maður í spjallþætti Opruh Winfrey og fyrr á þessu ári rifti Paramount-kvikmyndaverið samningi sínum við hann. Holmes og Cruise trúlofuðu sig í París um miðjan júní og eiga saman eitt barn, dótturina Suri, sem fæddist í apríl.
Menning Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira