Sævar Karl ósáttur við Tekinn 15. nóvember 2006 12:30 Sævar karl Kveðst ekki vera sár út í Auðunn. „Þetta er hvort eð er búið og gert.“ „
Þetta er ekki minn stíll. Sigurður Kári myndi aldrei fá svona móttökur hér og ég hálfskammast mín fyrir þetta," segir Sævar Karl Ólason kaupmaður um sjónvarpsþáttinn Tekinn, sem sýndur var á Sirkus á mánudagskvöld. Í þættinum var Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður boðaður í herrafataverslun Sævars Karls í Bankastræti til að gera kjarakaup. Það runnu hins vegar tvær grímur á þingmanninn þegar hann sat uppi með himinháan reikning og ekki bætti úr skák að „afgreiðslukonan" var hinn dónalegasta. Þegar Sigurður var við það að storma út í fússi birtist Auðunn Blöndal, umsjónarmaður þáttarins, og gerði gott úr öllu saman. Sævar Karl segir að þótt mörgum finnist hrekkurinn eflaust fyndinn hafi hann ekki fallið í kramið hjá sér. „Auðunn er grallari og tekur upp á ýmsu. Ég er líka grallari en mitt grín er öðruvísi. Sjálfum fannst mér verið að niðurlægja Sigurð Kára, sem við myndum aldrei gera, hvorki við hann né aðra. Við reynum að veita öllum persónulega þjónustu, enda kemur hingað fólk úr öllum stéttum." Sævar segist óttast að uppátækið eigi eftir að skaða sig frekar en hitt, en er þó ekki ósáttur við Auðunn. „Þetta er hvort eð er búið og gert." Sjálfur kveðst Auðunn hafa útskýrt hrekkinn fyrir Sævari. „Hann virtist bara taka þessu sem góðu gríni og eftir þáttinn voru allir sáttir. Sigurður kom líka vel út úr þessu," segir hann og telur ástæðulaust fyrir Sævar að hafa áhyggjur. „Ég held að allir viti að svona er búðin ekki."
Menning Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira