Húsavíkursmyglið hugsanlega angi af stórum smyglhring 26. október 2006 12:15 Höfnin á Húsavík, þar sem lögregla sat fyrir smyglurum. MYND/kk
Grunur leikur á að smyglmál, sem uppvíst varð um í rússnesku frystiskipi á Húsavík, sé aðeins angi af víðtæku smyglkerfi, sem tengist innflytjendum hér á landi. Liðsauki frá Ríkislögreglustjóra og fíkniefnadeild Reykjavíkurlögreglunnar verður væntanlega sendur norður í dag til að gera allsherjarleit í skipinu. Lögreglan á Húsavík mun að öllum líkindum krefjast kyrrsetningar á skipinu, sem nú er að losa heilfrystan rússafisk á Raufarhöfn til endurvinnslu hér á landi. Þegar hefur verið lagt hald á 14 hundruð karton af sígarettum , að söluverðmæti hátt í átta milljónir króna, og tugi lítra af Vodka. Sex menn voru handteknir í fyrrakvöld, tveir rússneskir skipverjar, Íslendingur og fjórir menn frá Rússlandi og Lettlandi. Rússarnir og Lettarnir höfðu komið frá Reykjavík vegna skipakomunnar til Húsvíkur og áttu að flytja varninginn til Reykjavíkur. Þeim var öllum sleppt í nótt en tveir Rússar til viðbótar voru handteknir í morgun vegna rannsóknarinnar og þrátt fyrir að skipið sé að verða búið að landa á Raufarhöfn, er það hvergi nærri á förum, eins og lögreglan á Húsavík orðar það. Þar liggur fyrir staðfest vitneskja um smygl með ámóta hætti þar sem varningnum var dreift á skipulegan hátt á neðanjarðarmarkaði meðal innflytjenda. Ekki liggur fyrir hvort fíkniefnum eða hráefnum til fíkniefnagerðar hefur verið smyglað með þessum hætti, en að óbreyttu stefnir í víðtæka leit í skipinu, meðal annars til að ganga úr skugga um slíkt. Samkvæmt heimildum Fréttastofunnar tengjast nokkrir Íslendingar málinu, auk þess sem var handtekinn.
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Sjá meira