Lífið

Fornir tónar að nýju

Árni Heimir INgólfsson tónlistarfræðingur Kynnir rannsóknir á tónlistarhandritinu Melódíu.
Árni Heimir INgólfsson tónlistarfræðingur Kynnir rannsóknir á tónlistarhandritinu Melódíu. MYND/E.ÓL

Gestum á Sumartónleikum í Skálholti gefst einstakt tækifæri að kynnast íslenskri tónlist fyrri alda því á morgun verður þar flutt fræðandi dagskrá sem byggir á rannsóknum á nótnahandiritinu Melódíu. Handrit þetta er stærsta og merkasta tónlistarhandrit sem varðveist hefur hérlendis en þar eru skráð 223 lög af fjölbreyttum toga, til dæmis þjóðlög, ástarsöngvar, sálmar, madrígalar og fleira.

Handritið er frá sautjándu öld og hefur til þessa verið lítið rannsakað en Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og stjórnandi kammerkórsins Carminu hefur ásamt Guðrúnu Laufeyju Guðmundsdóttur sagnfræðingi unnið að rannsókn þess. Meðal þess sem komið hefur í ljós við rannsóknirnar er að fyrirmyndir laganna er m.a. að finna í spænskum, þýskum, frönskum, ítölskum, svissneskum og austurrískum heimildum.  Því er ljóst að Ísland hefur ekki verið nærri því eins einangrað í tónlistarlífinu á 16. og 17. öld og hingað til hefur verið talið. 

Árni Heimir mun halda fyrirlestur um handritið í Oddstofu í Skálholtsbúðum annað kvöld kl. 21.15 og munu kórfélagar flytja tónlist í "upprunalegum útsetningum" úr handritinu. En kórinn mun flytja tónleikadagskrá byggða á handritinu næstkomandi laugardag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.