Lífið

Þögli stríðspabbinn

Einar Áskell Snáðinn er alltaf að læra eitthvað nýtt.
Einar Áskell Snáðinn er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Í nýjustu bókinni um heimspekinginn spurula Einar Áskel eftir Gunillu Bergström er fjallað um kynni hans af nýrri fjölskyldu sem kemur langt að. Einar Áskell eignast nýjan vin en faðir vinarins er fyrrum hermaður sem ekki vill ræða um stríðið þrátt fyrir forvitni strákanna.

En einu sinni segir hann þeim sögu úr stríðinu og þá hlusta strákarnir vel og vandlega. Faðir Hamdi er skemmtilegur kall og hjálpar þeim líka að búa til fótbolta mark og skipuleggur æfingar fyrir krakkana í hverfinu.

Einar Áskell og stríðspabbinn er tuttugasta og önnur bókin sem út kemur á Íslandi um kappann. Þýðandi er Sigrún Árnadóttir en útgefandi Mál og menning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.