Lífið

Hin blíðu hraun í Hafnarborg

Hraunið í íslenskri samtímalist
Fjöbreytileg verk er að finna á sýningunni í Hafnarborg.
Hraunið í íslenskri samtímalist Fjöbreytileg verk er að finna á sýningunni í Hafnarborg. MYND/Hörður

Yfirskrift sýningarinnar Hin blíðu hraun er tilvitnun í Jóhannes Kjarval, en með henni er sjónum beint að hrauninu sem er í Hafnarfirði allt um kring.

Um síðustu helgi opnaði sýning tólf listamanna í Hafnarborg, en þeir sækja allir innblástur sinn í hraunið líkt og Kjarval forðum daga.

Listamennirnir eru Anna Líndal, Bjarni Sigurbjörnsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Erling TV Klingenberg, Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Halldór Ásgeirsson, Kristbergur Pétursson, Patrick Huse, Ragna Róbertsdóttir, Spessi og Steina Vasulka.

Unnið er með hina ýmsu miðla á sýningunni, allt frá málverkum, skúlptúrum, lágmyndum, til myndbandsverka. Að sögn Jóns Proppé listfræðings eru verkin mjög fjölbreytileg, allt frá að hafa beina vísun í viðfangsefnið, yfir í að vera mjög abstrakt. Hér eru á ferðinni listamenn sem allir hafa sýnt víða og lagt drjúgan skerf til listalífsins undanfarin ár. Þeir eru á ýmsum aldri, en þeir yngstu eru um þrítugt og þeir elstu eru að nálgast sextugt.

Jón segist lengi hafa alið með sér þann draum að skipuleggja sýningu tengda hrauni. Ég ólst upp hér í Hafnarfirði og naut þess að búa við fegurð hraunsins sem umlykur allt. Þegar til kom að ræða þessa hugmynd við réttu aðilana var henni tekið fagnandi og listamennirnir sem koma að sýningunni hafa allir fengist við hraun í verkum sínum eða efni sem tengjast hrauni. Það er frábært að sjá að þetta viðfang, sem Kjarval kenndi okkur ef til vill fyrstur að meta, lifir í samtímalist, jafnt hjá ungum sem öldnum.

Stærsta verkið á sýningunni er jafnframt gjörningur sem listamaðurinn Halldór Ásgeirsson mun sýna, en hann verður unninn fyrir utan listasafnið á hverjum laugardegi. Halldór hefur lengi unnið með hraun, brætt það og teygt á alla vegu en nú vinnur hann með vikurstein sem hann bræðir með logsuðutæki. Við smíðuðum risastóran múraðan steinkassa sem er mikið meira en mannhæðahár og jafn á alla kanta. Hann er alls staðar lokaður, hliðar, loft og gólf, en Halldór mætti á laugardaginn með logsuðugræjurnar og bræddi sér leið inn í steininn á tveimur stöðum.

Hann heldur síðan gjörningnum áfram og afraksturinn á eftir að verða afskaplega fallegur, því þegar vikursteinn bráðnar þá breytist hann í svartan gljáandi glerung. Verkið klárar Halldór á næstu sjö vikunum, segir Jón. Þetta er langstærsta verkið sem Halldór hefur unnið með og segja má að það sé mjög karlmannlegt. Enn á eftir að finna skúlptúrnum endanlegan stað, en það verður gert á allra næstu dögum, að sögn Jóns.

Meðan á sýningunni stendur verður jafnframt fjölbreytt dagskrá í Hafnarborg og í Höfða, húsi Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, en félagið stendur að sýningunni í samvinnu við Hafnarborg.

Boðið verður upp á leiðsögn og fræðslu í skógræktinni frá hádegi á laugardögum. Í Hafnarborg verður líka leiðsögn og ýmsir gjörningar á laugardögum klukkan 16 og loks verða fyrirlestrar um náttúrufræði og listir í Hafnarborg á fimmtudagskvöldum kl. 20 en fimmtudaga er sýningin jafnframt opin lengur, frá 11-21. Sýningin stendur til 28. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.