Siglt á ný pöbbamið 11. júlí 2006 16:00 Gengið á milli bara Zeno og José segja pöbbaröltið góða leið til þess að kynnast nýju fólki og bjóða alla velkomna. Þeir hafa verið að hengja þessi plaköt út um allan bæ til þess að auglýsa uppátækið sem vakið hefur lukku. MYND/Hörður
Nýlega var farið að bjóða upp á skipulagt pöbbarölt um helgar í Reykjavík. Það er hinn 25 ára gamli Zeno Keilhacher sem stendur fyrir uppátækinu en honum til halds og traust er Spánverjinn Jose Rodriguez og fleiri útlendingar koma reyndar einnig við sögu. Pöbbaröltið fer þannig fram að áhugasamir mæta í hvalaskoðunarskipið Hafsúluna sem liggur við Reykjavíkurhöfn kl. 22 á föstudags- og laugardagskvöldum. Þar greiða menn 2500 krónur en innifalið í því er klukkustundar ótakmörkuð drykkja á bátnum, þaðan er farið á bar þar sem boðið er upp á skot, síðan er haldið á annan bar þar sem einnig er boðið upp á skot og svo er endað á dansstað þar sem aðgangseyrir er greiddur fyrir þáttakendur og þeim boðið upp á kokkteil. "Stuðið byrjar svo seint hér í Reykjavík og því er þetta kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja byrja kvöldið aðeins fyrr og kynnast nýju fólki," segir Zeno sem er hálfur Þjóðverji og hálfur Argentínumaður. Allt sitt líf hefur hann verið á faraldsfæti en hann kom fyrst til Íslands fyrir mánuði síðan. Eftir vikuvinnu á fiskiskipi sá hann viðskiptatækifæri í því að bjóða upp á pöbbarölt í höfuðborginni og hrinti hugmyndinni í framkvæmd. Um fjörutíu manns, bæði Íslendingar og útlendingar, hafa að meðaltali mætt í hvert pöbbarölt en enn sem komið er þarf fólk ekki að panta pláss heldur bara að mæta á staðinn. "Sumir Íslendingar hafa verið með fordóma gagnvart þessu, en þeir sem hafa látið slag standa og komið með okkur hefur öllum fundist þetta mun skemmtilegra en þá hafði grunað," segir Zeno rámum rómi eftir mikið stuð um síðustu helgi. "Við pössum upp á það að engum í hópnum leiðist og að allir skemmti sér vel." Hann bendir á að þrátt fyrir að fólk geti drukkið eins mikið og það vilji fyrsta klukkutímann þá er ekki um stífa drykkju að ræða heldur nýta menn frekar tímann í það að heilsa upp á hvorn annan og þannig hefur hópurinn náð að hristast saman áður en farið er á skemmtistaðina.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira