Gamla góða hlandfýla á Hróarskeldu 1. júlí 2006 13:00 SIgur Rós Fékk góða umsögn gesta á Hróarskeldu-hátíðinni.
Eftir hina miðlungsgóðu Southside í Þýskalandi er maður loksins kominn í alvöruna og uppáhald Íslendinga, hina goðsagnakenndu Hróarskeldu. Eftir að hafa tekið sóðalest frá sjálfum bænum þá veit maður hvert maður er kominn um leið og maður stígur niður úr lestinni. Þegar maður síðan labbar um svæðið í leit að tjaldstæði tekur á móti manni gríðarlega sterk hlandfýla og þeir sem dirfast nálægt girðingunum (þar sem allir kasta af sér vatni) verða að vera búnir að fá sér allavega nokkra öllara. Veðrið á svæðinu var ekkert neitt til þess að hrópa húrra fyrir þegar ég mætti á svæðið á miðvikudaginn en þegar þetta er skrifað er ekkert nema bongóblíða. Sem er reyndar til lengdar frekar truflandi því ég get ekki sagt að ég hafi beint gaman af því að vakna klukkan níu á morgnana vegna þess að ég get vart dregið andann út af hita. Þá hendir maður bara dýnunni út og leggst þar, ágætt að ná sér í smá tan í leiðinni. Veðrið hefur reyndar verið til fyrirmyndar frá því að ég brá mér til Evrópu og því get ég ekki kvartað, afar höfðinglega gert af veðurguðunum. Sjálf hátíðin hefur byrjað einstaklega vel. Í gær (fimmtudag) voru tvær hljómsveitir sem komu mér á óvart og það sem meira er, þær voru báðar danskar! Whomadewho og Barra Head hétu þær og voru báðar í góðu stuði. Sá líka íslensku álfapiltana í Sigur Rós í troðfullri Arena (næststærsta sviðið). Ég sá þá reyndar líka fyrir akkúrat viku síðan og tóku þeir nákvæmlega sama prógrammið, plús mínus eitt lag. Voru samt mun betri en fyrir viku sídan enda fengu þeir fimm af sex mögulegum fyrir frammistöðu sína í Hróarskeldublaðinu. En jæja, ég læt þetta nægja í bili frá sveitasælunni í Hróarskeldu, Morrissey og Bob Dylan eru ekki menn sem láta bíða eftir sér.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira