Lífið

Músík við Mývatn

Tónlistarhópurinn Katla Svava Ingólfsdóttir, Jóhanna Valsdóttir, Magnús Ragnarsson og Bjartur Logi Guðnason.
Tónlistarhópurinn Katla Svava Ingólfsdóttir, Jóhanna Valsdóttir, Magnús Ragnarsson og Bjartur Logi Guðnason. MYND/Vilhelm

Sumartónleikar við Mývatn hefjast nú um helgina og verða fyrstu tónleikarnir haldnir í Reykjahlíðarkirkju í kvöld. Tónlistarhópurinn Katla ríður á vaðið og flytur íslensk þjóðlög, einsöngslög og kórtónlist og einnig útsetningar og frumsamda tónlist. Hópinn skipa söngkonurnar Svava K. Ingólfsdóttir og Jóhanna Valsdóttir og Magnús Ragnarsson og Bjartur Logi Guðnason sem báðir leika á orgel og syngja.

Margrét Bóasdóttir hefur verið listrænn stjórnandi tónleikanna frá upphafi en þetta er tuttugasta starfsár þeirra. Dagskrá sumarsins er einkar glæsileg en lokatónleikar þess verða þeir hundruðustu á þessum tuttugu árum. Tónlistarflytjendur tengjast allir Mývatnssveit með einum eða öðrum hætti.

Tónleikarnir eru að jafnaði klukkustundar langir og er aðgangur ókeypis. Þeir verða í Reykjahlíðarkirkju öll laugardagskvöld í júlí og einnig verða tvennir tónleikar á sunnudagskvöldum í Skútustaðakirkju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.