Lífið

Nær bestu helgum sumarsins

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir Er stödd hér á landi fram á sunnudag og verður allan þann tíma í faðmi fjölskyldunnar á Landsmóti hestamanna.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir Er stödd hér á landi fram á sunnudag og verður allan þann tíma í faðmi fjölskyldunnar á Landsmóti hestamanna. MYND/Hari

"Ég kom á miðvikudagskvöldið og brunaði þá bara beint á Landsmót hestamanna. Þetta er stutt stopp fram á sunnudag þannig að ég verð fyrir norðan allan tímann," segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú heimur.

Unnur hefur verið á flakki um heiminn en var síðast hér á landi í byrjun júní. Hún hefur meðal annars farið til Wales, Póllands og Þýskalands þar sem hún horfði á fótboltaleik í boði Hyundai-bílaumboðsins. "Það var alveg geggjað að fara á leikinn enda stemningin ólýsanleg." Þaðan lá leiðin til Zürich í Sviss þar sem Unnur Birna var beðin um að kynna tískusýninguna Avant Garde fyrir fatahönnuðinn Valentino. Hann heldur svona sýningu árlega þar sem hann býður til sín fatahönnuðum og hárgreiðslufólki víðs vegar að í heiminum. "Ég hélt að þetta yrði auðvelt verkefni en svo reyndist ekki vera. Ég var alein að kynna fyrir framan tvö þúsund manns og þetta var tekið upp og verður sýnt um alla Evrópu."

Unnur fær lítið frí í sumar en svo heppilega vill til að hún fékk að koma heim sömu helgina og Landsmótið var haldið. Næst kemur hún um verslunarmannahelgina þar sem hugmyndin er að fara í langa hestaferð. "Ég er alveg ótrúlega ánægð með að ná þessum aðalhelgum sumarsins á Íslandi vegna þess að ég ræð engu um það hvenær ég fer í frí." Unnur er fyrir norðan í faðmi fjölskyldunnar enda öll mikið hestaáhugafólk. Hún hefur sjálf keppt á Landsmótinu síðan hún var lítil en getur ekki tekið þátt í ár enda ekkert búin að þjálfa í vetur. "Ég er bara svo ánægð að vera hér núna og ætla að njóta mín í botn," segir Unnu Birna hlæjandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.