Lífið

Hefnir sonurinn fyrir ófarir föður síns?

Önnur viðureignin í 16 manna úrslitum í Meistaranum fer fram í kvöld, fimmtudag kl. 20:05. Þá mætir aftur til leiks Haukur Harðarsson viðskiptafræðingur, sem lagði Helga Árnason skólastjóra Rimaskóla í fyrstu umferð. Og svo skemmtilega vill til að nú mætir Haukur syni Helga, Jónasi Erni Helgasyni, tvítugum verkfræðinema, sem sat hjá í fyrstu umferð. Það verður því einkar fróðlegt að sjá hvort sonurinn nái að hefna fyrir ófarir föður síns - og verði um leið föðurbetrungur.

 

Næstu viðureignirNæstu viðureignir í 16 manna úrslitum verða sem hér segir:

Sævar Helgi Bragason - Kristján Guy Burgess

Björn Guðbrandur Jónsson - Steinþór H. Arnsteinsson

Erlingur Sigurðsson - Ólína Þorvarðardóttir

Mörður Árnason - Stefán Már Halldórsson

Illugi Jökulsson - Ágúst Gíslason

Inga Þóra Ingvarsdóttir - Friðbjörn Eiríkur Garðarsson

Um MeistarannMeistarinn er nýr alíslenskur spurningaþáttur sem hóf göngu sína annan í jólum og hefur farið geysivel af stað. Þátturinn hefur þegar vakið mikið umtal í fjölmiðlum enda eiga eftir að etja þar kappi margir af helstu spurningahaukum þjóðarinnar og verður því úr skorið hver sé í raun og reynd Íslandsmeistari í spurningakeppnum, hinn eini og sanni Meistari.

Vefur Meistarans

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.